Störf
Gildi Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands eru sköpun, snerpa, samstarf og mannauður. Miðstöðin leggur mikla áherslu á að laða afburðastarfsfólk til miðstöðvarinnar og skapa því hvetjandi vinnuumhverfi sem byggi á jafnrétti og framúrskarandi starfsháttum. Hafið samband við Karl Friðriksson framkvæmdastjóra mannauðs- og markaðsstofu (karlf@nmi.is) fyrir frekari upplýsingar.
Störf í boði
Starf markaðs- og gæðastjóra
Ert þú framúrskarandi í markaðsmálum og gæðastjórnun? Ef svo er viljum við á Nýsköpunarmiðstöð Íslands fá þig í okkar hóp sem markaðs- og gæðastjóra.
Starfssvið
Að stjórna markaðsaðgerðum og verkefnum á sviði gæðamála. Ritstýra vefsíðu og hafa umsjón með útgáfumálum og almennatengslum.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun á sviði markaðsmála, fjölmiðlunar, viðskiptafræða, stjórnunar eða á sambærilegu sviði.
- Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Frumkvæði og dugnaður
- Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli
- Hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulund.
- Æskilegt er að umsækjandi hafi tengsl við fjölmiðla.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Karl Friðriksson framkvæmdastjóri mannauðs- og markaðsstofu í síma 5229000, karlf@nmi.is
Hvatt er til umsókna frá konum jafnt sem körlum.
Umsóknum skal skila fyrir 25. júní nk. merktum Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Markaðs- og gæðastjóri - Starfsumsókn, Keldnaholti, 112 Reykjavík.
Frekari upplýsingar
Starfið heyrir undir mannauðs- og markaðsstofu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Mannauðs- og markaðsstofan er stoðdeild fyrir allar aðrar deildir og starfsemi miðstöðvarinnar. Hluti miðstöðvarinnar er vottaður á sviði gæðastjórnunar. Launakjör eru samkvæmt samningum við opinbera starfsmenn og fara eftir þeim viðmiðum.
Ferli umsóknar
Öllum umsóknum verður svarað. Gert er ráð fyrir að fimm til tíu umsækjendur verði teknir í fyrsta viðtal meðal annars til að svara spurningum um eðli starfsins og kröfur, þrír aðilar verða fengnir í annað viðtal þar sem launamál verða rædd ásamt því sem upp kemur. Gera má ráð fyrir að þetta ferli taki um tvær vikur.
Umsækjendum er bent á að kynna sér frekar starfsemi Nýsköpunarmiðstöðvar á þessari vefsíðu. Eftirfarandi atriði tengjast starfinu sem auglýst er:
Markaðsstefna
Markaðsstefna Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands:
- vera leiðandi í nýsköpun á sviði tækni og þjónustu sem styrkir íslensk fyrirtæki í öflugri atvinnusköpun
- vera í forystuhlutverki í umræðu og aðgerðum sem efla samkeppnishæfni og árangur íslensks atvinnulífs.
Hlutverk mannauðs- og markaðsstofu
-
Að treysta og viðhalda jákvæðri ímynd gagnvart viðskiptavinum og hagsmunaaðilum miðstöðvarinnar.
-
Að móta og hafa umsjón með greiningu á mörkuðum starfssviða miðstöðvarinnar.
-
Að samræma og samhæfa markaðsaðgerðir í starfi deilda og miðstöðvarinnar.
-
Að móta og endurmeta markaðsstefnu í samræmi við framtíðarsýn, hlutverk og stefnu miðstöðvarinnar á sérhverjum tíma.
-
Að framkvæma markaðsáætlun þar sem tilgreindir eru áherslumarkaðir og mótaðar eru aðgerðir til að ná tilgreindum markmiðum.
Meginverkefni
Meginverkefni á sviði markaðsmála lúta að innri og ytri markaðssetningu.
Innri markaðssetning
- Að veita fræðslu til starfsmanna um mikilvægi markaðsmála í öllum þáttum starfseminnar.
- Að gera starfsmenn meðvitaðri um árangur í einstökum markaðsverkefnum.
- Að treysta og efla skilning starfsmanna á hlutverki og ímynd miðstöðvarinnar.
- Að skapa og viðhalda umræðuvettvangi um markaðsmál og aðgerðir meðal stjórnenda miðstöðvarinnar.
- Að greina óskir deilda og starfsmanna um aðgerðir og umbætur sem bæta markaðs- og sölumál deilda og starfsmanna.
- Að skapa vettvang fyrir innra upplýsingastreymi þannig að starfsmenn séu vel upplýstir um starfsemi miðstöðvarinnar.
Ytri markaðssetning
- Að greina þarfir og óskir á núverandi og nýjum mörkuðum fyrir þjónustu miðstöðvarinnar.
- Að kanna viðhorf atvinnulífsins til starfsemi miðstöðvarinnar.
- Að kanna árangur af starfsemi miðstöðvarinnar.
- Almenn markaðssetning á ímynd miðstöðvarinnar og upplýsingagjöf um starfsemi hennar. Áhersla er á útgáfu fréttabréfs og ársskýrslu, vefsíðu, gerð kynningarefnis, að standa fyrir og taka þátt í ráðstefnum og sýningum auk annarra aðgerða er lúta að almannatengslum.
Gæðamál
Það er stefna Nýsköpunarmiðstöðvar að starfrækja vottað gæðakerfi sem uppfyllir kröfur ISO 9001. Í því felst að vinna að stöðugum framförum og uppfylla kröfur til þjónustu. Vottun fékkst á starfsemi einnar deildar og hluta af annarri árið 2003.
Gæðastefna Nýsköpunarmiðstöðvar gagnvart viðskiptavinum og þjónustu sem stofnunin veitir er svohljóðandi:
Þjónusta
Í sérhverju verki leggjum við áherslu á fagleg vinnubrögð og jöfn gæði þjónustu. Viðskiptavinir Nýsköpunarmiðstöðvar geta treyst því að þeir fái þá þjónustu sem samið hefur verið um.
Þekking
Menntun, þekking og færni starfsmanna er lykill að velgengni Nýsköpunarmiðstöðvar. Allir starfsmenn fá þjálfun í aðferðum gæðastjórnunar og áhersla er lögð á símenntun.
Ábyrgð
Við leggjum áherslu á mikilvægi starfsmanna með því að sýna þeim traust til góðra verka. Starfsmenn sýna ábyrga afstöðu og framkomu í samskiptum við viðskiptavini og vinna störf sín af öryggi og trúmennsku.
Árangur
Í daglegri stjórnun leggjum við áherslu á skýr og mælanleg markmið og gott upplýsingaflæði milli stjórnenda og starfsmanna með hvatningu og fagleg vinnubrögð að leiðarljósi.
Verklagsreglur miðstöðvarinnar eru skráðar í gæðahandbók sem gefin er út í Lotus Notes.
Framkvæmdastjóri mannauðs- og markaðstofu er Karl Friðriksson.








