Bækur
Reglulega stendur Nýsköpunarmiðstöð að útgáfu upplýsinga og gagna sem snerta starfsemi miðstöðvarinnar, rannsóknir og nýsköpun. Áhersla er lögð á metnaðarfulla útgáfu og gagnsemi fyrir íslenskt atvinnulíf.
Á síðustu misserum hafa m.a. eftirtaldar bækur verið gefnar út:
Stjórnun vöruþróunar - aðferðir til árangurs gefur gott yfirlit yfir rannsóknir og líkön sem fjalla um árangursríkustu aðferðirnar í vöruþróun. Bókin er skrifuð fyrir þá sem hafa áhuga á vöruþróun og góðum starfsháttum í fyrirtækjum og stofnunum. Sjá nánar
Framtíðin - frá óvissu til árangurs gefur heildstæða mynd af aðferðum sem notaðar eru til að horfa til framtíðar og auka þannig víðsýni og öryggi við ákvarðanir á sviði stjórnunar. Sjá nánar
Plast gerir plastefnum, plastvörum og framleiðsluaðferðum góð skil. Sjá nánar
Vöruþróun - Frá hugmynd að árangri hjálpar þér að ná forskoti við að greina tækifæri, meta þau og þróa árangursríka markaðsvöru. Sjá nánar








