Bókin: Framtíðin - frá óvissu til árangurs
Vinnur þú að stefnumótun?
Hversu fær ertu um að lesa rétt í framtíðina? Bókin Framtíðin - frá óvissu til árangurs gefur heildstæða mynd af aðferðum sem notaðar eru til að horfa til framtíðar og auka þannig víðsýni og öryggi við ákvarðanir á sviði stjórnunar. Ómissandi bók fyrir alla sem vilja fylgjast með því nýjasta á sviði stjórnunar, stefnumótunar og framtíðarfræða.
„Breytingar eru lögmál lífsins. Og þeir sem horfa eingöngu til fortíðar eða nútíðar missa örugglega af framtíðinni.“
-John F. Kennedy
„Heppni hefur velþóknun á undirbúningi.“
- Luis Pasteur
„Á tímum breytinga erfa þeir jörðina sem læra, á meðan hinir lærðu uppgötva að þeir búa yfir stórkostlegri getu til að bregðast við heimi sem er ekki lengur til.“
- Eric Hoffe
Bókin fjallar um nýja hugsun og aðferðir við að meta valkosti og móta stefnu í flókinni veröld í ófyrirsjáanlegri framtíð.
Höfundar hafa hér tekið saman efni sem ætti að skipa veglegan sess hjá stjórnendum fyrirtækja og stofnana, stjórnmálamönnum, háskólanemum og öllum þeim sem takast á við tækifæri og ógnanir framtíðarinnar. Bókin gefur gott yfirlit yfir þau viðhorf sem ríkjandi eru á sviði framtíðarfræða og helstu aðferðir sem beitt er á þeim vettvangi. Jafnframt útskýra höfundar ítarlega notkun og framkvæmd einnar aðferðarinnar, sviðsmynda, sem gefur lesandanum gott veganesti hyggist hann notfæra sér aðferðina.
Höfundar bókarinnar eru þeir Eiríkur Ingólfsson hagfræðingur, Karl Friðriksson framkvæmdastjóri Mannauðs- og þjónustusviðs Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Sævar Kristinsson framkvæmdastjóri Netspors ehf.
ATH! Bókin fæst í helstu bókabúðum en einnig getur þú pantað hana á vefpóstfanginu pontun@nmi.is í síma 522 9000 eða með því að leggja inn pöntun hér á vef Nýsköpunarmiðstöðvar.
Styrktaraðilar útgáfunnar:

![]() |
![]() |
![]() |
| |
![]() |












