Upptaka af ársfundi 2010
300 manns sóttu ársfund Nýsköpunarmiðstöðvar 2010 sem haldinn var á Hilton Reykjavík Nordica fimmtudaginn 11. mars. Á fundinum var sjónum beint að skapandi greinum og mikilvægi fjölbreytni í atvinnulífinu. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra kom starfsmönnum Nýsköpunarmiðstöðvar á óvart og færði þeim rós í hnappagatið fyrir öflugt starf í þágu nýsköpunar á Íslandi. Verk Sigtryggs Baldurssonar tónlistarmanns á ársfundinum vakti jafnframt mikla athygli en hann fékk til liðs við sig sjö slagsverksleikara sem spiluðu á búsáhöld. Mikill hugur var í fulltrúum sprotafyrirtækja á fundinum og sögðu fimm frumkvöðlar á frumkvöðlasetrum Nýsköpunarmiðstöðvar frá góði gengi.
Smellið á tenglana hér að neðan til að sjá myndbandsupptöku af erindum ársfundar:
Ávarp
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra
Fjölbreytni tegundanna
Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
Fréttir af frumkvöðlum
Sigríður Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar og fulltrúar fyrirtækjanna Maximus Musicus, Medical Algorithms, Dexoris, Vistvæn orka og Remake Electric.
INNSLAG 1: Innsýn í starfsemi Nýsköpunarmiðstöðvar
Skapandi atvinnugreinar og menningarhagfræði
Ágúst Einarsson rektor Háskólans á Bifröst
Listir sem þróunarmiðstöð sköpunar
Ása Richardsdóttir framkvæmdastjóri Íslenska dansflokksins
Sigtryggur Baldursson flytur nýtt verk
Hugbúnaðarþjónusta til leigu á veraldarvef
Jón Ingi Björnsson framkvæmdastjóri TrackWell
Matarupplifun og skapandi menning í ferðaþjónustu
Rósa Björk Halldórsdóttir framkvæmdastjóri Ríki Vatnajökuls
Orkusprotar
Bjarni Ellert Ísleifsson verkefnisstjóri á Nýsköpunarmiðstöð
INNSLAG 2: Innsýn í starfsemi Nýsköpunarmiðstöðvar
Kolefniskapphlaupið í Masdar City
Ólafur Wallevik próf. og forstöðumaður grunnrannsókna á Nýsköpunarmiðstöð
Virkjun afls og hugar á Vestfjörðum
Þorgeir Pálsson framkvæmdastjóri Atvest
Eldfastar afleiður
Guðbjörg Hrönn Óskarsdóttir, verkefnisstjóri á Nýsköpunarmiðstöð
INNSLAG 3: Innsýn í starfsemi Nýsköpunarmiðstöðvar








