Orkubóndinn í Eyjum - Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Staður: Kaffi Kró Vestmannaeyjum
Viðburður: Orkubóndinn í Eyjum
Lýsing:
Orkubóndinn í Eyjum
Áhugamenn um virkjun orku, hvort sem um er að ræða virkjun bæjarlækjar, hitareits, vindgnauðs, sólar eða jafnvel fjóshaugs, geta sótt námskeiðið Orkubóndann sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands stendur fyrir í Eyjum þann 23. mars n.k.
Á námskeiðinu í Eyjum verður sérstök áhersla lögð á virkjun með varmadælum, vindmyllum og einnig með öldum og sjávarföllum.
Orkubóndinn er fyrir áhugafólk um virkjun orku, einstaklinga, fyrirtæki, landeigendur, bændur og alla sem vilja beisla orkuna heima fyrir, en lögð er áhersla á að gera efnið skemmtilegt og aðgengilegt öllum og er námskeiðsgjaldið einungis 3000 krónur. Námskeiðið hefur verið haldið víðsvegar um landið nú þegar og bera góðar viðtökur merki um mikinn áhuga á virkjun orku og sjálfbærni meðal almennings, en alls hafa nú yfir 500 manns sótt námskeiðið.
Orkubóndinn er samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Orkustofnunar, Iðnaðarráðuneytisins, Mannvits, Verkís, Ísor og heimamanna víða um land, en námskeiðið verður haldið á níu stöðum í vetur. Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Þorsteinn Ingi Sigfússon forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar, heimamenn, og sérfræðingar frá Nýsköpunarmiðstöð, Orkustofnun, Ísor og verkfræðistofunum. Í framhaldi af Orkubóndanum eiga þátttakendur kost á að fá aðstoð við að hrinda virkjunarhugmyndum í framkvæmd.
Herferð Orkubóndans um landið lýkur 19. maí þegar haldin verður ráðstefna í Reykjavík þar sem þátttakendur af námskeiðunum koma saman og mun Iðnaðarráðherra veita hvatningarverðlaunin Orkubóndinn.
Námskeiðið í Eyjum verður haldið þann 23.mars n.k. á Kaffi Kró kl. 10:00 - 16:45. Skráning á námskeiðið er á heimasíðu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, http://www.nmi.is/impra/namskeid/orkubondinn/skraningarblad-vestmannaeyjar/ og hjá Frosta Gíslasyni frosti@nmi.is.
Nánari upplýsingar veita:
Þorsteinn Ingi Sigfússon forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands s. 522 9000 / 896 5692.
Brynja Sigurðardóttir verkefnisstjóri, brynjasig@nmi.is s. 522 9000 / 691 2404.
Frosti Gíslason, verkefnisstjóri, frosti@nmi.is 522 9440 / 861 5032
til baka








