Orkubóndinn í Reykjavík - Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Staður: Hótel Saga
Viðburður: Orkubóndinn í Reykjavík
Lýsing:
Viltu verða orkubóndi og framleiða þína eigin orku? Allir geta orðið orkubændur!
Orkubóndinn er námskeið fyrir áhugafólk um virkjun orku, einstaklinga, fyrirtæki, landeigendur, bændur og alla sem hafa áhuga á að beisla orkuna heima fyrir. Á námskeiðinu er fjallað á aðgengilegan hátt um leiðir til að virkja læki eða ár, jarðhita, vindorku, sólarorku eða jafnvel fjóshauginn.
Námskeiðið hefur verið haldið á átta stöðum um landið í vetur og verður um sannkallaða lokahátíð að ræða 11. og 12. maí en Katrín Júlíusdóttir iðnaðar- og orkumálaráðherra mun á námskeiðinu veita Orkubóndaverðlaun.
Orkubóndinn í Reykjavík verður haldinn 11. og 12. maí í Harvard Sal á Hótel sögu kl. 9:30 - 17:00 fyrri daginn og 9:30 - 12:00 seinni daginn.
til baka








