Rannsóknastofa
Rannsóknastofa fellur undir sviðið Íslenskar tæknirannsóknir hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, byggingar og mannvirki
Verkefni rannsóknastofunnar eru tvíþætt; þjónustuverkefni annarsvegar og verklegur hluti rannsóknaverkefna hinsvegar.
Á rannsóknastofunni fara fram prófanir á hinum ýmsu byggingarefnum. Aðallega er um að ræða prófanir á sviði steinsteyputækni, húsbyggingatækni, vegtækni og jarðfræði/jarðtækni. Innan húsbyggingatækninnar er einnig stórt sérrými fyrir hljóðmælingar.
Mikið er um að prófanir séu staðlaðar og framkvæmdar með sérbyggðum tækjum, en einnig er töluvert um óstöðluð próf. Óstöðluð próf krefjast sérundirbúnings og uppstillingar í hvert sinn og eru ýmis álagspróf algengust, t.d. á festingum, húseiningum og öðrum sérsmíðuðum hlutum.
Staðlaðar prófanir eru helst framkvæmdar á jarðefnum, steinsteypu, malbiki, steypustyrktarstáli, stálfestingum, einangrun og gluggum.
Þó flestar prófanir fari fram innandyra á rannsóknastofu, er nokkuð um mælingar og prófanir á byggingarstað. Má þar helst nefna þjöppunarmælingar á fyllingum undir mannvirki, töku sýna úr steinsteypu, hvers konar ástandsmat mannvirkja o.fl.
Verkstjóri á Rannsóknastofu er Hafsteinn Hilmarsson










