Samstarf
Nýsköpunarmiðstöð Íslands vinnur með það að leiðarljósi að styrkja samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs með því að auka og efla þekkingaryfirfærslu, nýsköpun og framleiðni íslenskra fyrirtækja. Nýsköpunarmiðstöð, sem er leiðandi þjónustustofnun á sviði rannsókna- og þróunarstarfs, tækniyfirfærslu og stuðnings við frumkvöðla og fyrirtæki, rækir hlutverk sitt með fjölbreyttum hætti. Stofnunin rækir lögbundinverkefni á víðtæku sviði en vinnur jafnframt að nýjum og framsæknum hugmyndum. Nýsköpunarmiðstöð er vakandi fyrir þörfum íslensks atvinnulífs og samfélags og bregst við brýnum verkefnum í þágu efnahags og sóknar. Lögð er sérstök áhersla á langtíma hugsun og stefnumótandi þekkingaruppbyggingu.
Samstarfsverkefni við Evrópusambandið hafa verið mjög áberandi í starfsemi tæknideilda Nýsköpunarmiðvar á nýliðnum árum. Hér er til mikils að vinna fyrir íslenskt atvinnulíf enda styrkir Evrópusambandið tæknisamvinnu fyrirtækja, stofnana og atvinnulífs þannig að hérlend fyrirtæki og stofnanir geta unnið verkefni með bestu fáanlegu samstarfsaðilum á Evrópska samstarfssvæðinu.
Meðfylgjandi er nokkur dæmi um fagsvið sem verið er að vinna innan miðstöðvarinnar. Nánari útlistun á verkefnum er síðan að finna undir hverjum lið fyrir sig:
Þróunarverkefni í ferðaþjónustu
Hayfever heaven– skilgreining á Íslandi á vetrarmánuðum sem staðar þar sem frjóofnæmi er í lágmarki. Verkefni unnið náið með flugfélögum og með skjaldborg lækna og sérfræðinga sem hafðir eru með ráðum. Nýsköpunarmiðstöð Íslands telur að verkefnið muni brjóta nýtt blað í ferðaþjónustu
Ísland allt árið– ferðaþjónusta á lágönn. Markmið verkefnisins er að auka arðsemi ferðaþjónustunnar meðal annars með því að bæta innviði hennar og efla starfsemi greinarinnar á lágönn. Verkefnið er samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Ferðamálastofu, Samtaka ferðaþjónustu fyrirtækja og Íslandsstofu.
Sjóböð við Húsavík – uppbygging á heilsársferðaþjónustu. Nýsköpunarmiðstöð studdi fyrsta áfanga verkefnisins “Sjóböð við Húsavík” en um nokkurn tíma hefur verið horft til þess af aðilum á Húsavík að nýta heitan sjó úr borholu á Húsavíkurhöfða til uppbyggingar á heilsársferðaþjónustu.
Váætlanir vegna náttúruhamfara fyrir ferðaþjónustuna - Verkefni unnið í samvinnu við Ferðamálastofu með aðferðum sviðsmyndagerðar til að fyrirbyggja hættuástand fyrir ferðamenn og hvernig best megi þjónusta þá með viðeigandi upplýsingum og viðbrögðum þegar vá á sér stað.
Orkulandið Ísland – aukin nýting orku
Landsvarmi – lágmarks notkun á rafmagni við upphitun húsa - Í þessu flokki ber hæst verkefnið Landsvarmi sem miðar að því að minnka notkun á verðmætu rafmagni til hitunar á híbýlum. Þannig verði notast við varmadælur sem nýta lágan hita, t.d. sjávarhita, til þess að drýgja raforku sem nú er notuð til húshitunar. Þetta verkefni snertir mjög margar byggðir landsins.
Betri nýting háhita borhola - Samvinnuverkefni við rússneska vísindamenn sem snýr að því að nýta betur háhita borhola á háhitasvæðum sem grunn að efnaiðnaði. Vatn sem hitað er í 360°C og nokkra tugi loftþyngda í þrýsting verður „leysir“ í efnaferlum.
Virkjun á seltumun árvatns og sjávar - Áfram verður unnið að þessu langtímaverkefni sem snýr að könnun á gjörvileika þess að virkja seltumun árvatns og sjávar við ós. Í þessu verkefni hefur þegar verið sýnt fram á að jökulleir er líklega ekki mikill skaðvaldur í slíkum virkjunum.
Lífeldsneyti – framleiðsla á innlendu umhverfisvænu eldsneyti - Verkefnið, sem unnið er í samstarfi Nýsköpunarmiðstöðvar við Sorpu, Háskólann á Akureyri auk fleiri aðila, er skilgreint sem öndvegisverkefni hjá Tækniþróunarsjóð. Verkefnið gengur út á að þróa og aðlaga tækni sem myndi gera hérlendum aðilum kleyft að framleiða eldsneyti sem kæmi þá að fullu eða miklu leyti í stað innflutts eldsneytis. Hér er horft til m.a. gösunar á sorpi og lífrænum úrgangi.
Framleiðsla DME sem eldsneytis - Í samvinnu Nýsköpunarmiðstöðvar við iðnaðarráðuneytið, Orkustofnun, Elkem á Íslandi og Mitsubishi Heavy Industries í Japan var unnin fýsileikakönnun á framleiðslu DME sem eldsneytis á Íslandi. Horft var til verksmiðju á Grundartanga sem myndi framleiða DME úr öllum afblæstri Járnblendiverksmiðjunnar, en CO2 úr afblæstri yrði þá blandað vetni til framleiðslu DME. Verkefnið vakti mikinn áhuga erlendis og í framhaldi af því var Nýsköpunarmiðstöð boðið samstarf við Volvo Trucks í Svíþjóð og Halldor Topsöe í Danmörku um framleiðslu á DME.
Þátttaka í háhitaklasa - Þátttaka Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands í háhitaklasa sem starfræktur er undir forustu orkufyrirtækja undir verkefnisstjórn ráðgjafafyrirtækisins Gekon ehf.
Umhverfismál og umhverfisvernd
Grunnur að eldsneyti með gösun - Dæmi um verkefni á sviði umhverfismála og umhverfisverndar má nefna notkun plasmabrennara sem knúinn er með raforku til þess að mynda mikinn háhita sem nýta má til sundrunar efna. Áhugaverðasta sviðið er t.d. plastefni úr heyrúllum, fiskinetum, plastflöskum o.fl. en úr þessu má gera grunn að eldsneyti með svokallaðri gösun. Samvinna er við Prof. Philip Rutberg í St. Pétursborg.
Skiljun óæskilegrar fitu frá frárennslisvatni - Í samstarfi við Málmey ehf. er unnið að gerð fituskilju sem sett verður upp hjá sláturhúsi á Blönduósi til að skilja frá frárennslisvatni óæskilega fitu. Með stórum hakkavélum verður svo unnið úr öðrum úrgangi og úr honum m.a. unnin fita í lífdísel. Fyrirmynd varðandi ákveðna umhverfisþætti.
Ný notkun gosvikurs - Unnið er að hugmyndum um ný iðnaðarnot fyrir íslenskan vikur sem auka munu verulega verðmæti þessarar alíslensku afurðar.
Þróun framleiðslu næringarskammta fyrir World Food Programme - Á Skagaströnd er unnið að þróun sérstakrar framleiðslu fyrir World Food Programme í samvinnu við Sameinuðu þjóðirnar. Hér er um að ræða framleiðslu á næringarskömmtum sem ætlaðir eru alnæmissjúklingum í þróunarlöndunum
EcoTroFood - Verkefnið snýst um aðdraga úr neikvæðum umhverfisáhrifum evrópsks matvælaiðnaðar með því að auka hraða og umfang markaðssetningar og notkunar nýrra umhverfisvænna lausna í matvælaiðnaði. Verkefnið er styrkt af EU
EcoEthical - Markmið verkefnisins er að sameina aðila sem votta og veita viðurkenningu fyrir góða starfshætti á ákveðnum sviðum atvinnulífsins. Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur sett fram hugmyndir um hvernig draga má úr neikvæðum umhverfisáhrifum og stuðla þannig að grænkun atvinnulífsins með t.d. hvers kyns minnkun á losun mengandi efna og gróðurhústegunda og betri nýting auðlinda
Græn nýsköpun - Hér er um að ræða samnorrænt verkefni á sviði grænnar nýsköpunar - Green Business Model Innovation. Markmið verkefnisins er að afla gagna og koma á framfæri aðferðum og ferlum við að vinna að umhverfisvænni nýsköpun.
Vistvæn þróun í byggingatækni - Þegar horft er til kolefnisfótspors Íslands virðist ljóst að nokkur atriði eru mjög ráðandi um CO2 losun tengd íslensku atvinnulífi. Hæst ber auðvitað eldsneyti í flutningum. Steinsteypa er einnig stór valdur losunar, en reikna má með að um eitt tonn af CO2 losni fyrir hvert tonn af steypu sem notuð er í byggingar. Hópur við Nýsköpunarmiðstöð undir stjórn Próf. Ólafs Wallevik hefur kannað að nota önnur efni í eins konar sementslaust steinlím. Skoðuð hafa verið efni á borð við ösku úr Eyjafjallajökli og fastefni úr Bláa lóninu. Þessi nýju og spennandi efni geta boðað nýja tíma í vistvænni byggingatækni
Ljósvarpa – fisksmölun og fiskveiði - Verkefnið hefur vakið mikla athygli fyrir frumlega hugsun í að smala fiski og veiða. Unnið hefur verið að verkefninu með góðum stuðningi innlendra aðila svo sem iðnaðarráðuneytinu og Tækniþróunarsjóð auk annarra. Verkefnið er sprottið úr hugarflugi starfsmanna ELO, var í framhaldinu þróað með starfsmanni Hafró. Þegar verið sótt um einkaleyfi fyrir hugmyndafræðinni.
Vinnsla kol- og basalttrefja í Skagafirði - Nýsköpunarmiðstöð vinnur að því í samvinnu við hagsmunaaðila í Skagafirði að laða að og þróa iðnað tengdan koltrefjum og basalttrefjum. Eftirspurn eftir koltrefjum hefur aukist verulega á síðustu mánuðum og líkur eru á að hún aukist enn frekar samhliða niðurlagningu kjarnorkuvera víðsvegar um heiminn, en trefjarnar nýtast við smíði stórra vindorkuvera. Í bígerð er útgáfa kynningarefnis um Ísland sem staðsetningarkost fyrir koltrefjaframleiðslu og á næstu dögum verða tekin sýni úr íslenskum basaltnámum sem fara til bræðslu í Kína, en til stendur að prófa eiginleika trefja sem framleiddar eru úr íslensku basalti.
Nýsköpun í hönnun og framleiðslu
Sjálfvirknivæðing klæðagerðar - Nýsköpunarmiðstöð Íslands vinnur með Veru Þórðardóttur fatahönnuði við að gera aðferð Veru við gerð klæða úr sílikon tilbúna fyrir iðnferli. Aðferðafræði Fab Lab verður notuð til að sjálfvirknivæða klæðagerð Veru með notkun tölvustýrðra véla.
Ný gerð fluguveiðihjóla úr áli - Unnið hefur verið að verkefni með sprotafyrirtækinu Fossadalur ehf. á Ísafirði um þróun nýrrar gerðar fluguveiðihjóla úr áli. Það mikil ánægja var með samstarfið að nú hafa tvö verkefni komið í kjölfarið með sprotafyrirtækjum á Ísafirði, annað um skoðunframleiðslu á hjólastólumog hitt aðþróa álbrynjunar ferlií samvinnu nokkurra aðila er byggir á fluguveiðihjólunum, framleiðslu 3X stál auk þjónustu við framleiðendur álhluta hérlendis
Norðaustan 10 - Nýsköpunarmiðstöð Íslands stendur fyrir verkefninu Norðaustan10 á Norðaustur- og Austurlandi. Þetta er vöruþróunarverkefni sem hefur það að markmiði að styðja við vöruþróun í framleiðslufyrirtækjum á svæðinu. Fengnir eru fimm vöruhönnuðir á hverju svæði til þess að vinna að hugmyndum í tengslum við þau fyrirtæki sem eru á svæðunum með það að markmiði að út úr verkefnunum komi söluhæfar vörur sem framleiddar verða af fyrirtækjunum og sú þekking nýtt sem fyrirtækin hafa yfir að ráða. Verkefnið er unnið í samvinnu við verkefnin „Þorpið“ á Austurlandi og „Úti á Túni“ á Norðausturlandi.
OptiCast - verkefni byggt á íslenskri uppfinningu. Verkefnið er unnið í samstarfi tveggja íslenskra fyrirtækja, fyrirtækja í UK og Finnlandi auk Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Pera nýsköpunarstofnunar í Bretlandi. Verkefnið byggir á íslenskri uppfinningu sem unnið hefur verið að með stuðningi Tækniþróunarsjóðs. Árangur hefur verið það lofandi að í þessu nýja Evrópuverkefni styður sambandið þróun hugmyndarinnar þannig að hægt verði að selja framleiðslurétt á afurðum til fyrirtækja erlendis. Verkefnið stutt af EU.
MicroDry - þróun tækni til að flýta þurrkun húsa. Verkefnið er unnið í samvinnu fyrirtækisins Intelscan auk fyrirtækja í Belgíu, Bretlandi, Spáni og rannsóknastofnanna UK Materials Technology Research Institute og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Verkefnið gengur út á að þróa tækni til að flýta þurrkun húsa sem hafa orðið fyrir flóðskemmdum. Íslensku þátttakendurnir sjá mikil sóknarfæri í þeirri tækni sem nýtt er í verkefninu en Intelscan hefur þróað tæki til að mæla vökvainnihald í framleiðslu svo sem fiskimjöli og dýrafóðri. Þegar eru hafnar þreifingar um nýtt verkefni sem byggir á þessari sömu tækni. Verkefnið stutt af EU.
NavOScan - þrívíddarskönnun.Verkefnið byggir á þrívíddar skönnun sem gerir kleift að staðsetja og málsetja hluti með mikilli nákvæmni án þess að nýta fasta mælipunkta eins og þarf í dag. Íslenska sprotafyrirtækið Autonomous State ehf. og Nýsköpunarmiðstöð vinna saman að þessu verkefni sem er liður í þeirri uppbyggingu sem átt hefur sér stað á Nýsköpunarmiðstöð Íslands innan skynjara og mælitækni. Verkefnið stutt af EU
Nanoflex - þróun leirflagna sem nýtt eru í plaströr. Verkefnið gengur út á að þróa plastefni með örlögum úr leir, en slíkt plastefni gæti komið sem ódýr valkostur inn á markaðinn þar sem skerma þarf innstreymi súrefnis úr andrúmslofti inn í vökva sem fluttur er um plaströr. Íslenski verkhlutinn byggir á þróun leirflagna sem nýttar eru í plaströrin. Hérlendis er Nýsköpunarmiðstöð þátttakandi en fyrirtæki eins og SET hf á Selfossi er væntanlegur notandi að þessari tækni náist markmið verkefnisins. Verkefni stutt af EU
Háhiti ehf. - framleiðsla háhitaeinangrunar. Með blöndun kísilryks úr afblæstri Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga við brennt kalk er hægt að framleiða háhitaeinangrun sem nýtt er m.a. til fóðrunar rafgreiningar kera álvera. Stofnað var fyrirtækið Háhiti ehf. í samvinnu Nýsköpunarmiðstöðvar við Akraneskaupstað. Unnið hefur verið að tæknilegri þróun hugmyndarinnar á Nýsköpunarmiðstöð og er viðskiptaáætlun fyrir fyrirtækið í lokafrágangi
Notkun örbylgna í byggingum.Áhugavert Evrópuverkefni sem felur í sér notkun örbylgna við að þurrka húshluta sem t.d. hafa orðið fyrir miklum vatnsskaða. Sett hefur verið upp örbylgjumiðstöð og þar skoðað hvernig örbylgjur má nota til að þurrka vatnssósa steinsteypu í byggingum. Þá er nú einnig hugað að því hvernig nota mætti örbylgjur til að eyða óværu eins og veggjatítlum eða sveppum.
Efling plastiðna - Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra hlutu nýlega styrk úr Leonardo áætlun Evrópusambandsins til að vinna að yfirfærslu á kennslu í plastiðnum frá Finnlandi og Danmörku til Íslands. Verkefnið felur m.a. í sér að boðið verður upp á kennslu í plastsmíði sem iðngreinar í fyrsta skipti á Íslandi, en stefnt er að því að fagið verði löggilt. Verkefnið mun auka samkeppnishæfni landsins í framleiðslu á hverskonar vörum smíðuðum úr plasti og auka möguleika á að laða að iðnað í þessum sívaxandi geira. Verkefnið mun standa í tvö ár.
Stjórnun og rekstur
Sókn í norrænu samstarfi - Átaksverkefni um markvissa upplýsingamiðlun um fjármögnunarleiðir á sviði norræns samstarfs. Markmiðið er að auka möguleika íslenskra fyrirtækja, stofnana, félagasamtaka og einstaklinga að sækja í samnorrænt styrkfé, með því að greina verkefnahugmyndir og veita ráðgjöf um bestu leiðir.
Measured and Managed Innovation - Samstarfsverkefni leiðandi íslenskra fyrirtækja, Norrænu Nýsköpunarmiðstöðvarinnar, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og helstu nýsköpunar- og tæknistofnana á Norðurlöndum sem byggir á aðferðafræði sem miðar að því að skapa ný verðmæti sem hafa í för með sér róttæka nýja virðisaukningu fyrir viðskiptavini og fyrirtæki með því að breyta einni eða fleiri víddum í stjórnun og rekstri fyrirtækis, eða með því að skapa ný viðskiptatækifæri.
Nordisk Innovasjons forum - Norrænt kyndilverkefni sem miðar að því að vinna að skilgreiningu á tækifærum og sérstöðu Norðurlanda á sviði „græns hagvaxtar“ og velferðar.
Nýsköpun í opinberum rekstri - Markmið verkefnisins er að hvetja til nýsköpunar í opinberum rekstri með hvatningu og fræðslu um aðferðir og verkferla. Verkefnið er samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Rannís og Háskóla Íslands í samvinnu við fjármálaráðuneytið.
Nýsköpun og menning - Markmið verkefnisins er að draga fram skilgreiningar á nýsköpun og tengja hana við almenna vöruþróun með áherslu á menningargreinar. Dæmi eru dregin fram um árangur á að nota hefðbundnar stjórnunaraðferðir við menningarverkefni.
Rannsóknir og þróunarverkefni á sviði steinefna- og vegtækni
Leiðbeiningar við Alverk - Vinna við leiðbeiningaskrif vegna Alverks er í fullum gangi. Kaflinn um steinefni í slitlög er langt kominn og kaflinn um steinefni í steypu er í undirbúningi. Það sem skrifað hefur verið er birt á heimasíðu Vegagerðarinnar.
Evrópustaðlar frá staðlanefndum CEN/TC 154 og CEN/TC 227 - Hér er um langtímaverkefni að ræða og er unnið að verkefninu samkvæmt áætlun en steinefnastaðlar eru í 5 ára endurskoðun. Staðlapakkar um malbik tóku gildi 1. mars 2008.
Steinefnabanki - Verkefnið sé í stöðugri vinnslu og fylgst er með stöðu bankans þegar sýni eru tekin úr honum. Ný sýni hafa bæst við bankann annars vegar vegna breikkunar Reykjanesbrautar fyrir nokkrum misserum og yfirstandandi breikkunar Hringvegar/Suðurlandsvegar.
Malbiksrannsóknir í ljósi nýrra Evrópustaðla – malbikssetur - Undanfarin ár hafa verið gerðar tilraunir í hjólfaratæki bæði á söguðu malbiki af götu og þjöppuðu á rannsóknastofu. Einnig hefur verið mælt slitþol malbiks með nýju tæki, Prall. Á næstu misserum verða framkvæmdar rannsóknir á mismunandi malbiksgerðum og malbiki með ýmsum íaukum s.s. fjölliðum. Nokkrar skýrslur hafa verið gefnar út um prófanir í ýmsum tengdum verkefnum og verða líklega fleiri skýrslur gefnar út á næstunni.
Klæðingar á vegum - Unnið að er nokkrum verkefnum í samvinnu við Vegagerðina um klæðingar á vegum. Eru þar til skoðunar prófunaraðferðir, athugun á vegarköflum, könnun á mismunandi þynningarefnum og viðloðunarefnum.
Efnagreiningar og umhverfisvöktunNýsköpunarmiðstöð þjónar atvinnulífinu með fjölþættri þjónustu og verkefnum á sviði efnagreininga, vottana og prófana.
Efnagreiningarþjónusta - Almenn efnagreiningarþjónusta við ýmsa aðila, iðnfyrirtæki, verkfræðistofur, opinberar stofnanir og almenning
Umhverfisvöktun og mengunarmælingar Vöktun loftgæða og rekstur mælingastöðva á Hvaleyrarholti (og Garðaholti). Vöktun á mengun í gróðri kringum álver Alcan á Íslandi ásamt vöktun á mengun í sjó, kræklingarannsóknir.
Alcoa Fjarðaál - Vöktun loftgæða og yfirumsjón með rekstri 4 mælingastöðva á Reyðarfirði. Mengunarmælingar í útblæstri frá álveri Fjarðaáls
Norðurál / Elkem - Vöktun loftgæða og rekstur mælingastöðva á Stekkjarási, Kríuvörðu og Hálsnesi í Hvalfirði. Vöktun á mengun í gróðri í Hvalfirði. Mælingar á mengun í beinum sauðfjár og hrossa. Vöktun á mengun í sjó, kræklingarannsóknir. Mengunarmælingar í útblæstri frá álveri Norðuráls og verksmiðju Elkem.
Hvalur hf. - Sýnaumsjón og mælingar á snefilmálmum og PAH, PCB og díoxin í hvalaafurðum.
LBHÍ, Landgræðslan - Efnamælingar í gróðri og jarðvegi, tengdar grunnrannsóknum og gróðurkortagerð.
Umhverfisstofnun - Vöktun loftgæða og rekstur mælingastöðvar á Hvaleyrarholti auk ýmissa smærri verkefna.
Útblástursmælingar - Mengunarmælingar á útblæstri frá sorpbrennslum og iðnfyrirtækjum um allt land. Ryk, ólífræn mengunarefni af ýmsu tagi, PAH og díoxin.
Veðurstofan - Vöktun á mengun í lofti og úrkomu. Grunnmælingar á Írafossi og í Mjóanesi.
Þróunarverkefni - Hrefnuverkefni. Grunnrannsóknir á líffræði og fæðunámi hrefnu við Ísland til bættrar auðlindastjórnunar. Hollustuefni sjávarfangs. Grunnrannsóknir og mælingar á hollustuefnum í íslensku sjávarfangi.