Frumkvöðlasetur
Nýsköpunarmiðstöð Íslands rekur fjögur frumkvöðlasetur. Markmið frumkvöðlasetra Nýsköpunarmiðstöðvar er að veita frumkvöðlum aðstöðu, skapandi umhverfi, tengslanet og faglega ráðgjöf til að vinna að nýsköpun.
Hvað felst í því að vera á frumkvöðlasetrum Nýsköpunarmiðstöðvar?
- Leiga á skrifstofuaðstöðu gegn vægu gjaldi
- Aðgangur að fundarherbergjum
- Aðstaða fyrir verkstæði, rannsóknir og frumgerðasmíði (Keilir, Keldnaholt)
- Þjónusta móttöku og símsvörunar (Keldnaholt)
- Fagleg ráðgjöf og stuðningur Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands
- Skapandi umhverfi og öflugt tengslanet fyrirtækja og starfsmanna Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
Nánari upplýsingar um setrin
Keldnaholt Grafarvogi, Reykjavík
|
Frumkvöðlasetrið á Keldnaholti í Reykjavík byggir á áralangri reynslu og þekkingu sem gefur fyrirtækum á setrum Nýsköpunarmiðstöðvar mikilvægt forskot.
|
Kím Medical Park Vatnagörðum 18, Reykjavík
|
Frumkvöðlasetur fyrir fyrirtæki í heilbrigðistækni og skyldum greinum sem rekið er í samstarfi við Háskólann í Reykjavík, Háskóla Íslands, iðnaðarráðuneytið og Summit ehf.
|
Kveikjan Strandgötu 31, Hafnarfirði
|
Kveikjan er rekin í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ og Garðabæ.
|
Kvosin Lækjargötu 12, Reykjavík
|
Kvosin er rekin í samstarfi við Íslandsbanka á tveimur hæðum í húsnæði Íslandsbanka í Lækjargötu.
|
Hús sjávarklasans Grandagarði 16
|
Hús sjávarklasans er samstarfsverkefni Eimskips, Icelandair Cargo, Brims, Mannvits, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Húss sjávarklasans
|
Auk frumkvöðlasetra Nýsköpunarmiðstöðvar hér að neðan kemur Nýsköpunarmiðstöð að rekstri Frumkvöðlasetursins á Ásbrú við Keflavíkurflugvöll, en innan þess eru fyrirtækjahótelið Eldvörp og vinnuaðstaða og frumkvöðlamiðstöð í Eldey. Nýsköpunarmiðstöðin starfrækir einnig, í samvinnu við aðra, Líftæknihús að Keldnaholti fyrir sprotafyrirtæki sem þurfa á rannsóknaaðstöðu að halda.
Frekari upplýsingar
Sigríður Ingvarsdóttir framkvæmdastjóri er rekstrarstjóri frumkvöðlasetra. Þeir sem hafa áhuga á að fá aðstöðu í frumkvöðlasetrum er bent á að hafa samband við Sigríði Ingvarsdóttur á netfangið si@nmi.is.