Með rekstur
Vöxtur og þróun
Þegar reksturinn er kominn af stað - og sér í lagi þegar hann
hefur sannað sig - þarftu að fara að huga að endurnýjun, frekari
vöruþróun, koma með nýjar hugmyndir, nýtt fé, allt til að stuðla að
vexti fyrirtækisins. Það er fjarri því að öll fyrirtæki nái að vaxa
en hafir þú gert ítarlegar og góðar áætlanir um vöxt er
líklegra að árangur náist.
Í raun eru fá fyrirtæki fær um að ná verulegum vexti og ekki
tekst öllum fyrirtækjum að vaxa þrátt fyrir vilja eigenda. Því er
mikilvægt ef þú hyggur á vöxt að finna út hvort það henti fyrirtæki
þínu og hvort þú og stjórnunarteymi þitt séu tilbúin í það. Umfram
allt verður þú að vera meðvitaður um þær þrautir sem þú kemur til
með að standa frammi fyrir þegar fyrirtekið fer í gegnum hin ýmsu
skeið vaxtar.