Sala reksturs
Ef til vill kemur sá tími að þú viljir selja reksturinn af
einhverjum ástæðum. Þá þarf að huga að ýmsu og sjá með hvaða
hætti skuli standa að sölunni og hvernig verðmat fyrirtækis
fer fram.
Gott er að huga að eftirfarandi þáttum í söluferlinu:
- Eru bókhaldsgögn/ársreikningar tilbúin?
- Er ferli þjónustu/framleiðslu vel skilgreint?
- Þarfnast viðskiptaáætlun uppfærslu?
- Eru einhverjir mikilvægir samningar komnir á tíma sem
gætu skipt kaupanda máli?
- Eru einhverjir mikilvægir samningar í nánd sem gæti verið gott
að ganga frá fyrir sölu?
- Fylgja viðskiptasambönd með í kaupunum?