Beint á leiðarkerfi vefsins

Evrópskir styrkir og samstarfsvettvangar

Amanda Garner verkefnistjóri veitir ráðgjöf og stuðning og leiðbeinir m.a. við umsóknarskrif og við myndun tengslaneta í gegnum Enterprise Europe Network (www.een.is). Fyrirtæki og aðrir eru hvattir til að nýta sér þessa þjónustu því ótal tækifæri felast í Evrópusamstarfi. Hafa má samband við Amöndu með því að senda tölvupóst á netfangið amanda@nmi.is eða í síma 522 9268.

Opin köll 7. RÁ Opin köll CIP Leit að samstarfsaðilum 

7. RÁ - 7. Rannsóknaráætlun ESB (2007-2013) er helsta tól ESB til fjármögnunar rannsókna í Evrópu. Einstaklingar, fyrirtæki, háskólar, rannsóknarstofnanir og ýmis samtök á Íslandi geta tekið þátt í verkefnum innan 7. rannsóknaráætlunarinnar. Nánar>> 

EUROSTARS  verkefni eru rannsóknar- og þróunarverkefni sem geta verið á hvaða tæknisviði sem er. Markmið þeirra sé þróun á nýrri vöru, ferli og þjónustu. Skilyrði er að aðalumsækjandinn í verkefninu sé lítið eða meðalstórt fyrirtæki (LMF) sem stundar sjálft rannsóknir og þróun og sé frá einu af Eurostarslöndunum. Miðlægt evrópskt mat. Nánar>>

CIP - Samkeppnis- og nýsköpunaráætlun ESB  (2007-2013)  er áætlun sem er ætluð litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Undir CIP eru þrjár undiráætlanir: Nýsköpunaráætlunin (EIP), Upplýsingatækniáætlunin (ICT-PSP)  og Orkuáætlunin (Intelligent Energy) - sjá vinnuáætlun hér. Undir EIP er hægt að fá fjármögnum beint til fyrirtækja sem styðja við vistvæna nýsköpun (Eco-Innovation). Nánar>>

EUREKA  er samstarfsvettvangur á forsendum fyrirtækjanna. Umsóknir fara í mat heimalandanna. Tækniþróunarsjóður getur fjármagnað Eureka verkefni. Milliríkjasamstarf 39 Evrópulanda og Evrópusambandssins um tækni- og iðnþróun. Nánar

COST  er milliríkjasamstarf  35 COST Evrópulanda um netsamstarf á sviði vísinda- og tæknirannsókna. Nánari upplýsingar veitir Katrín Valgeirsdóttir hjá Rannís.  www.cost.esf.org/participate/open_call.      Nánar>>

Evrópsk vefsíða um styrkjamöguleika LMF, lítilla og meðalstórra fyrirtækja Upplýsingar um hvar mismunandi gerðir lítilla og meðalstórra fyrirtækja geta sótt stuðning. 

Fleiri evrópskar áætlanir á Íslandi er hægt að finna hér.


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica