Norrænir styrkir
Nýsköpunarmiðstöð Íslands heldur utan um markvissa upplýsingamiðlun um fjármögnunarleiðir innan norræns samstarfs. Markmiðið er að upplýsa og auka möguleika íslenskra fyrirtækja, stofnana, félagasamtaka og einstaklinga að sækja í samnorrænt styrkfé. Verkefnið var sett af stað sem átaksverkefni til tveggja ára og lauk 31. desember 2011. Frumkvæði að verkefninu og fjármögnun þess kom frá Norrænu ráðherranefndinni.
Verkefnisstjóri verkefnisins var Kjartan Due Nielsen, og er Kjartan nú komin í önnur störf hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Þrátt fyrir að verkefninu sé lokið mun Kjartan svara fyrirspurnum eins og kostur er. Hafa má samband við Kjartan með því að senda tölvupóst: kjartan@nmi.is eða í síma: 522-9246.
Styrkja- og stuðningsmöguleikar
- Yfirlit umsóknafresta og yfir sérstök umsóknaköll.
- Ábendingar varðandi umsóknaskrif.
Styrkja- og stuðningsmöguleikar flokkaðir eftir sviðum:
Aðrir styrkja- og stuðningsmöguleikar:
| Áætlun um sjálfbæra þróun |
| Grannsvæðasamstarf |
| Hnattvæðingarsamstarfið |
Samnorrænar lánastofnanir:
| Norræna umhverfisfjármögnunarfélagið |
| Norræni fjárfestingabankinn |
| Lánasjóður Vestur-Norðurlanda |
- Styrkja- og stuðningsmöguleikar í stafrófsröð.
- Auglýst útboð til verka og laus störf til umsóknar.
- Formennskuáætlun Finna 2011 í Norrænu ráðherranefndinni.
- Gagnlegar upplýsingar um opinbert samstarf Norðurlandanna.









