Mannvirkjasvið
Helstu fagsvið Mannvirkjasviðs eru húsbyggingartækni, burðarþol, efnistækni þ.e.a.s. jarðefna og annarra húsbyggingarefna, hljóðtækni og yfirborðsmeðhöndlun.
Verkefnum sviðsins má skipta í eftirfarandi þætti:
- Ráðgjöf
- Rannsóknarverkefni
- Þjónusturannsóknir
- Útgáfa, kynningar og fræðsla
- Gæðavottanir og umsagnir
Hlutverk deildar er að þjónusta viðskiptavini með prófunum og upplýsingagjöf, fræða fagaðila og almenning um mikilvæg málefni á sviði mannvirkja og að veita ráðgjöf, umsagnir og vottanir á byggingarvörum og/eða framleiðslu þeirra.
Forstöðumaður er Óskar Örn Jónsson, rekstrar- og byggingaverkfræðingur.