Fyrir Nýsköpunarmiðstöð Íslands eru lífsgæði einn af hornsteinum tilgangsins og er yfirskrift fundar lýsandi fyrir þau fjölmörgu verkefni og áskoranir sem Nýsköpunarmiðstöð tekst á við á degi hverjum, á mörgum sviðum þekkingarsamfélagsins í samvinnu við einstaklinga, fyrirtæki, skóla og stofnanir. Aðstaða á Nýsköpunarmiðstöð og sú sérfræðiþjónusta og færni sem til staðar er, gerir stofnuninni kleift að takast á við rannsóknir á nýjum fræðasviðum sem hafa eða munu hafa mikil áhrif á framþróun íslensks atvinnulífs.
Hátt í 400 manns sóttu ársfund Nýsköpunarmiðstöðvar 2010 sem haldinn var á Hilton Reykjavík Nordica fimmtudaginn 17. mars. Á fundinum var sjónum beint að mikilvægum verkefnum sem öll eiga það sameiginlegt að stuðla að bættum lífgæðum í íslensku samfélagi á ólíkum sviðum. Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra ítrekaði mikilvægi nýsköpunar og nýskapandi hugsunar á sama tíma og hún þakkaði Nýsköpunarmiðstöð fyrir móttækileika og jákvæðni gagnvart nýjum og krefjandi verkefnum. Þorsteinn Ingi Sigfússon talaði þann sáttmála sem íslenska þjóðin á eftir að gera við framtíðina og við sjálfa sig í erindi sínu ,,Sól er á morgun". Fatahönnuðurinn, Vera Þórðardóttir sló botninn í viðburðarríka dagskrá en í hönnun sinni hefur Vera í vaxandi mæli verið að nota silikon efni og það á mjög nýstárlegan hátt. Skemmtilegt samstarf er nú að skapast milli hönnuðarins og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, sem býr bæði yfir rannsóknaraðstöðu og efnislegri sérfræðiþekkingu sem nýst getur Veru vel í þróun og framleiðslu á fatnaði sínum.
Myndbandsupptökur
Smellið á tenglana til að horfa á myndböndin:
Inngangserindi fundarstjóra: Þorsteinn J. fjölmiðlamaður
Ávarp ráðherra - Katrín Júlíusdóttir
„Sól er á morgun" - Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri
Betri borgarbragur - Björn Marteinsson, verkefnastjóri
Hið byggða umhverfi okkar er mikill áhrifavaldur í mótun lífs okkar að því er varðar lífsgæði s.s. heilsu, sjónræna örvun og upplifun. Það skiptir því miklu að vel takist til í mótun hins byggða umhverfis og vel sé farið með fjármuni og náttúruauðlindir þegar byggt er til framtíðar.
Boðskapur frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands víða um land - Karl Friðriksson, framkvæmdastjóri
Kynning á nýju stefi Nýsköpunarmiðstöðvar sem nýtt verður í allt viðeigandi kynningarefni og á ráðstefnum. Arnar Guðjónsson tónlistarmaður og starfsmaður Nýsköpunarmiðstöðvar á heiðurinn af stefinu. Nýtt stef Nýsköpunarmiðstöðvar frumflutt í myndbandi sem sýnir starfsemina víða um land.
Markaðsþróun á vettvangi: LivingLab - Anna María Pétursdóttir, starfsmannastjóri hjá Vífilfelli
Living Lab aðferðinni er ætlað að koma á tengslum milli framleiðenda afurða og notenda þeirra með það að markmiði að gera nýsköpun skilvirkari. Hugmyndafræðin gengur út á það að vinna að nýsköpun í nánu sambandi við notendur, atvinnulíf, háskóla og framleiðendur vöru og þjónustu í opinbera og einkageiranum.
Að byrja smátt en hugsa stórt - Sigríður Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri
Mikill og sýnilegur árangur hefur verið hjá þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem staðsett eru á frumkvöðlasetrum Nýsköpunarmiðstöðvar. Sigríður segir frá setrunum og kynnir fimm frumkvöðla sem hafa árangursríka sögu að segja:
RemakeElectric - Hilmir Ingi Jónsson
MindGames: Hugþjálfun og tölvuleikir - Deepa Iyengar
Gyðja Collection: Hönnun fylgihluta og framleiðandi EFJ ilmsins - Sigrún Lilja Guðjónsdóttir
Sæbýli: Eldi á botnlægum sjávardýrum - Ásgeir Guðnason
Lipid Pharmaceuticals: Lyfjaþróun úr lýsi - Guðrún Marta Ásgrímsdóttir
Locatify: Leiðsögumaður í snjallsíma - Leifur Björn Björnsson
Stefnumiðuð nýsköpun - Berglind Hallgrímsdóttir framkvæmdastjóri, Páll Kr. Pálsson framkvæmdastjóri Skyggnis og Hákon Gunnarsson framkvæmdastjóri hjá Gekon
Innleiðing á aðferðafræði og stjórnun sem snýr að verðmætasköpun á öllum sviðum rekstrar með skipulögðum hætti í starfandi fyrirtækjum.
Ævintýri í Abu Dhabi - Sunna Ó. Wallevik, verkefnastjóri og Ólafur H. Wallevik, framkvæmdastjóri
Unnið er að þróun umhverfisvænnar steinsteypu í samvinnu við fyrirtækið readyMix í Abu Dhabi sem snýr að þróun tækis sem mælir gæði steinsteypu í trommlu steypubíls.
Íslenski hönnuðurinn sem LadyGaga valdi - Vera Þórðardóttir, hönnuður
Vera Þórðardóttir er íslenskur fatahönnuður sem hefur átt stigvaxandi velgengni að fagna. Bandaríska söngkonan LadyGaga var í jakka frá Veru þegar hún kom fram á árlegri góðgerðarskemmtun Eltons Johns í júní. Hönnun Veru er um margt óvenjuleg, en hún notar silikon efni á skemmtilegan og frumlegan hátt í hönnun sinni.
Ársfundur Nýsköpunarmiðstöðvar hlaut mikla efnislega umfjöllun í fjölmiðlum í kjölfar fundar. Á meðfylgjandi linkum er að finna þær fréttir sem birtar voru og þau viðtöl sem tekin voru:
Fréttir af erindum á ársfundi:
Viðtöl í fjölmiðlum eftir ársfund