Kynningartækni og kynningar fyrir erlendum kaupendum
Dagsetning: mánudagur, 11. mars 2013 - miðvikudagur, 13. mars 2013
Klukkan: 09:00 - 17:00
Íslandsstofa kynnir verkefni í markaðs- og söluþjálfun fyrir starfsmenn fyrirtækja í mannvirkjahönnun. Verkefnið gagnast einkum starfsmönnum arkitekta- og verkfræðistofa sem sjá um markaðsstarf og öflun verkefna erlendis. Áhersla í verkefninu er á Noreg sem markaðssvæði.
Verkefnið skiptist í þrjá vinnufundi þar sem farið verður yfir ýmis hagnýt atriði sem nýtast við undirbúning markaðsstarfs og í samskiptum við væntanlega kaupendur í Noregi. Í maí er áætluð markaðsheimsókn til Noregs þar sem skipulagðir verða viðskiptafundir og fyrirtæki heimsótt.
Dagskrá:
- Vinnufundur 30. janúar: söluskilaboð og markaðsefni, menningarlæsi og samningatækni
- Vinnufundur 20. febrúar: samskiptahæfni, sölutækni og þjónusta
- Vinnufundur 11.-13. mars: kynningartækni og kynningar fyrir erlendum kaupendum
- Markaðsheimsókn í maí: Osló, Stavanger og Bergen
Þátttökugjald fyrir vinnufundina þrjá er kr. 160.000. Innifalið í gjaldinu eru öll gögn, veitingar og gisting á síðasta vinnufundi. Kostnaður vegna Noregsferðar er ekki innifalinn í þátttökugjaldi.
Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að fylla út meðfylgjandi umsókn um þátttöku í verkefninu og senda á Björn H. Reynisson, bjorn@islandsstofa.is.
Nánari upplýsingar veita:
Björn H. Reynisson, bjorn@islandsstofa.is,
Erna Björnsdóttir, erna@islandsstofa.is og
Hermann Ottósson, hermann@islandsstofa.is