Beint á leiðarkerfi vefsins

Viðhald og viðgerðir

Nýsköpunarmiðstöð Íslands tekur þátt í hvatningarátaki stjórnvalda í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins um viðhald og viðgerðir á byggingum. Búið er að taka saman hér að neðan ýmsar gagnlegar upplýsingar fyrir fagmenn og húseigendur um viðhald. Í haust verður jafnframt boðið upp á námskeiðið Viðhald og verðmæti víða um land þar sem fjallað verður um viðgerðir húseigna. Nánari upplýsingar um hvatningarátakið

Stöndum vörð um verðmæti fasteigna með viðhaldi Allir vinna - Halldór byggja

Samfara miklum nýbyggingarframkvæmdum er meðalaldur húsnæðis lágur hérlendis eða innan við 30 ár. Viðhaldsþörf bygginga hefur því verið í lágmarki en fyrirséð er að þörfin fyrir viðhald og endurbyggingu muni fara stigvaxandi. Nauðsynlegt er að tryggja áframhaldandi verðmæti fasteigna með reglubundnu og fyrirbyggjandi viðhaldi og endurnýjun.

Orkusparnaður samfara viðgerðum

Þegar viðgerðir og viðhald bygginga er skipulagt er mikilvægt að huga að aðgerðum til orkusparnaðar samhliða viðgerðum. Þó að Íslendingar búi við lágt orkuverð samanborið við nágrannaþjóðirnar er nokkuð víst að orkuverð muni fara hækkandi á komandi árum. Oft er um að ræða einfaldar aðgerðir, sem felast fremur í útfærslu lausna en að stofnað sé til sértækra orkusparnaðaraðgerða, t.d. viðbótareinangrun, einangrun kuldabrúa, val á glergerð, staðsetning og frágangur rakavarna- og vindþéttilaga, þéttleiki útveggja, glugga og þaks almennt o.s.frv. sem geta minnkað varmatap bygginga og leitt til verulegs orkusparnaðar. Sé þörf á umfangsmeiri og kostnaðarsamari endurbótum er ástæða fyrir húsbyggendur að huga að sérstökum aðgerðum til orkusparnaðar samfara endurbótunum. Þessar aðgerðir fela oftast í sér verulegan kostnað sé stofnað til aðgerðanna einna og sér. Séu þær hins vegar skipulagðar sem hluti nauðsynlegra endurbóta verður hægkvæmni þeirra mun meiri en ella t.d. klæðning útveggja, endurbygging á þaki eða útskipting á gluggum.

Húseigendum er bent á að leita ráðgjafar sérfræðinga sem hafa sérhæft sig í viðhaldi bygginga með tilliti til orkusparnaðar áður en stofnað er til meiriháttar endurbóta.

Upplýsingar fyrir fagaðila og húseigendur

Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur um árabil gefið út ýmiss konar efni bæði fyrir fagaðila og húseigendur sem geyma mikilvægar upplýsingar um viðgerðir og viðhald bygginga.

Málun utanhúss 
Almennar leiðbeiningar, kerfislýsingar og markaðsyfirlit fyrir allar helstu gerðir yfirborðsflata sem koma fyrir utanhúss.

Sprungur í steinveggjum og leki
Sprungur í útveggjum steinhúsa, hreyfingar sprungna, virkni vatnsfælna, fylling sprungna og þétting gegn leka.

Viðhald og viðgerðir á steinsteypu
Ýmis rit um steypuskemmdir- og viðgerðir, yfirborðsefni fyrir steinfleti og fleira.

Gluggar og glerjun
Viðhald glugga, ísetning, frágangur rakavarnalaga við glugga og fleira.

Einangrun byggingarhluta 
Raki í húsum, hvernig bæta má orkunýtingu, frágangur rakavarnarlaga og fleira.

Klæðning útveggja
Hönnun og frágangur klæðningar utanhúss, timburklæðningar, málmklæðningar og fleira.

Viðgerðir og klæðning þaka
Bárujárn, læstar málmklæðningar og fleira.

Fúavarnir
Verndun viðar gegn fúa, viðarskemmdir og orsakir fúa, gagnvörn og fúavarnarefni.

 

 

 

 


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica