Viðhald og verðmæti
Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Íbúðalánasjóður hafa á síðustu mánuðum verið að bjóða húseigendum og iðnaðarmönnum á opið námskeið um viðhald og verðmæti fasteigna á nokkrum stöðum um landið. Viðhald og verðmæti er samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar og Íbúðalánasjóðs við sérfræðinga frá Steinsteypufélagi Íslands, verkfræðistofum, Orkusetrinu, Rafiðnaðarskólanum, Húsi og heilsu, Iðunni - fræðslusetri og heimamenn í hverjum landshluta fyrir sig.
Fyrirkomulag námskeiðs
Á námskeiðinu er fjallað um mikilvæga viðhaldsþætti svo sem raflagnir, leka, loftgæði, húsasótt, hitastýringu, orkunotkun og mat á viðhaldsþörf. Á meðan á námskeiði stendur og í lok hvers námskeiðs er þátttakendum boðið á tengslatorg þar sem þeim gefst tækifæri til að fá svör og ráðgjöf hjá sérfræðingum og ráðgjöfum á hverju sviði. Fjölmargir iðnmeistarar, verkfræðistofur, bankar og þjónustuaðilar í byggingariðnaði veita á tengslatorginu upplýsingar og fræðslu um allt sem lýtur að viðhaldi, endurbótum á húsnæði og að auknum lífsgæðum á heimilum og vinnustað.
Næstu námskeið
Nú þegar hafa námskeiðin verið haldið á Akureyri, Ísafirði, Egilsstöðum og í Reykjavík með mjög góðum árangri. Enn hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort og hvar námskeiðið verður haldið næst en upplýsingar þess efnis verða birtar hér á síðunni um leið og þær liggja fyrir.
Frétt um námskeið á Akureyri
Frétt um námskeið á Ísafirði
Frétt um námskeið á Egilsstöðum
Upplýsingar og útgáfa um viðhald bygginga og mannvirkja








