Vottun - Tjónagreiningar
Vottun byggingarvöru
Nýsköpunarmiðstöð Íslands vottar byggingarvörur eða veitir umsögn um þær sé eftir því leitað. Þeir sem óska eftir slíku skulu sækja um á sérstöku eyðublaði.
Sjá nánar Vottun byggingarvöru.
Tjónagreiningar
Einnig er veitt þjónusta við greiningar á tjónum sem verða vegna tæringar eða þegar efni gefa sig. Einnig eru gerðar prófanir sem miða að því að segja til um hvort viðkomandi efni sé heppilegt til ákveðinna nota eða ekki.
Við rannsóknir á tjónum er stuðst við eftirfarandi:
- Skoðun á brotsárum, með aðstoð víðsjár og rafeindasmásjár.
- Efnagreiningar á málmun og tæringarafurðum.
- Smásæ greining á efnisuppbyggingu.
- Stöðluð próf á efniseiginleikum.
Sjá nánar um tjónagreiningar hér.








