Beint á leiðarkerfi vefsins

Vottun byggingarvöru

Nýsköpunarmiðstöð Íslands (NMÍ) vottar byggingarvörur eða veitir umsögn um þær í samræmi við ákvæði í lögum og reglugerðum, sé eftir slíku leitað. Í ákvæðunum kemur fram að byggingarvörur skuli, allt eftir atvikum, vera CE-merktar eða hafa vottun eða umsögn um að þær uppfylli kröfur byggingarreglugerðar, standist staðla og falli að verklagi og séríslenskum aðstæðum, og er þetta forsenda fyrir markaðssetningu. Húseiningar flokkast sem byggingarvörur og sérhvert einingahús skal bera vottun.

Sé ÍST EN-staðall það sem nefnt er "samhæfður" fyrir byggingarvöru skal varan bera CE-merkið eftir tiltekna dagsetningu, en merkið tryggir þó ekki að séríslenskum reglugerðarákvæðum sé fullnægt.

Útgáfa vottorðs er almennt háð því að NMÍ hafi með höndum samfellt eftirlit með framleiðslu vörunnar og, eftir atvikum, gerðarprófun, en öðrum kosti er aðeins gefin út umsögn.

Sjá nánar undir Almennar upplýsingar hér að neðan.

Vottunarstjóri er Rögnvaldur S. Gíslason.

Umsóknir

Þeir sem óska eftir vottun eða umsögn skulu sækja um slíkt á sérstöku eyðublaði, sem opna má hér að neðan, fylla út og skila rafrænt (sjá nánar undir "Rafræn skjalaskil" hér að neðan).

Rafræn skjöl - hnappurLeiðbeiningar um notkun umsóknareyðublaðsins eru að finna á Ísland.is


Fréttir

Samstarfssamningur erlendis- ný þekkingar- og tækniyfirfærsla hjá Evrópumiðstöð

Klasar og klasastjórnun - upptaka frá málþingi

Framadagar háskólanna 2012 - takk fyrir okkur

Fréttaveita NMÍ - RSS 2.0

Á döfinni

8. febrúar 2012 - Selfoss

Brautargengi á Selfossi

sjá nánar

10. febrúar 2012 - Vefsíðu Nýsköpunarmiðstöðvar

Átak til Atvinnusköpunar opið til umsóknar

sjá nánar

14. febrúar 2012

Styrkir til atvinnumála kvenna 2012

sjá nánar


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica