Vottun byggingarvöru - almennar upplýsingar
Hlutverk NMÍ – vottun eða umsögn
Nýsköpunarmiðstöð Íslands (NMÍ) ber skv. Skipulags- og byggingarlögum að votta byggingarvörur eða veita umsögn um þær, sé eftir slíku leitað. NMÍ veitir þannig þjónustu á þessu sviði, en hefur ekki með höndum markaðseftirlit. Ákvæði í byggingarreglugerð (BR) og reglugerð um viðskipti með byggingarvörur (RVB) lýsa viðfangsefninu nánar. NMÍ hefur tekið við þessu hlutverki af öðrum tveggja forvera NMÍ, Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins.
Í ákvæðunum kemur fram að byggingarvörur á markaði skuli, allt eftir atvikum, vera CE-merktar eða hafa vottun eða umsögn um að þær uppfylli kröfur BR, standist staðla og falli að verklagi og séríslenskum aðstæðum. Eru þetta höfuðforsendur fyrir markaðssetningu byggingarvöru hér á landi. Vara lýtur í þessu tilliti aðallega því hvort við hana eiga svonefndar grunnkröfur um öryggi, heilsu og umhverfi, en þær eru sex talsins skv. byggingarvörutilskipun ESB og eru tilgreindar í viðauka I með RVB. Í BR er sérstaklega tekið fram að húseiningar og sérhvert einingahús skuli bera vottun.
Útgáfa vottorðs er háð því að NMÍ hafi með höndum samfellt eftirlit með framleiðslu vörunnar og, eins og við á eftir atvikum, gerðarprófun. Annars er gefin út umsögn, sem getur m.a. verið staðfesting á erlendri vottun prófunar og gæðaeftirlits.
CE-merking byggingarvöru
Í aðild Íslands að evrópsku staðlasamtökunum (CEN) felst að allir Evrópustaðlar, þ. e. EN-staðlar, taka gildi hér á landi sem ÍST EN-staðlar. Sé til EN-staðall fyrir byggingarvöru, sem er það sem nefnt er "samhæfður", er óheimilt lögum samkvæmt að hafa vöruna á markaði hérlendis, nema hún sé CE-merkt, þ. e. eftir tiltekna auglýsta dagsetningu, sbr. byggingarvörutilskipun ESB og RVB. Í stöðlum af þessu tagi eru kröfur um prófanir og samfellt gæðaeftirlit með framleiðslu vörunnar.
Vottun samræmis vöru við samhæfðan staðal, þ. e. til CE-merkingar, krefst vottunaraðila sem er sérstaklega "tilnefndur" og þar með viðurkenndur til slíkrar vottunar innan ESB. NMÍ er nú þegar "tilnefndur aðili" fyrir nokkra vöruflokka.
CE-merkt byggingarvara skal skv. RVB fullnægja íslenskum reglugerðarákvæðum, sem fela m. a. í sér að hún henti fyrirhugaðri notkun hérlendis með tilliti til veðráttu og annarra séríslenskra atriða, en CE-merkið eitt sér tryggir ekki slíkt. Ýmsir samhæfðir EN-staðlar vísa beinlínis til staðbundinna sérákvæða aðildarþjóðanna, sem beri þannig að taka tillit til við mat á samræmi við samhæfðan staðal til CE-merkingar. Hvort CE-merkt vara samræmist séríslenskum ákvæðum eða ekki getur NMÍ staðfest með umsögn, sé eftir því leitað.
Gæðamerkið “CE”
CE-merkið á byggingarvöru er gæðamerki í þeim skilningi að það á að vera trygging fyrir því að umrædd vara hafi þá eiginleika sem framleiðandi hennar lýsir yfir að hún hafi. Slíkt gerir hann með útgáfu svonefndrar EC-samræmisyfirlýsingar ásamt meðfylgjandi upplýsingum um þá eiginleika vörunnar, sem staðallinn tilgreinir að gefa skuli upp.
Hafa ber í huga í þessu sambandi að vottun sem slík er einvörðungu skilyrði fyrir CE-merkingu, ef samhæfði vörustaðallinn kveður á um að forsenda útgáfu EC-samræmisyfirlýsingar, og þar með CE-merkingar, sé að tilnefndur aðili gefi út vottorð, þ. e. EC-samræmisvottorð. Staðlar af þessu tagi krefjast vottunar einungis ef vægi grunnkrafnanna um öryggi, heilsu og umhverfi við notkun byggingarvörunnar er talið réttlæta hana.
Umsókn um vottun eða umsögn
Þeir sem óska eftir vottun eða umsögn skulu sækja um slíkt með því að fylla út sérststakt eyðublað, sem finna má hér á vef NMÍ og sem skila má rafrænt eða vista og senda ásamt fylgigögnum í tölvupósti eða afhenda útprentað. Þótt sótt kunni að vera um vottun, kann NMÍ eftir atvikum að gefa út umsögn í stað vottorðs.
NMÍ áskilur sér rétt til að afhenda þriðja aðila afrit af útgefnu vottorði eða umsögn og birta opinberlega, til að mynda á vefsíðum sínum.
Vottunarstjóri er Rögnvaldur S. Gíslason.








