Fjölbreytt námskeið og fræðsla fyrir frumkvöðla og fyrirtæki.
Creative Business Cup fyrir skapandi frumkvöðla
Ert þú skapandi frumkvöðull?
Nýsköpunarmiðstöð Íslands leitar að öflugu frumkvöðlafyrirtæki til að taka þátt í alþjóðlegu frumkvöðlakeppninni Creative Business Cup.
Umsóknarfrestur er til 16. september 2018, hægt er að sækja um hér.
Um keppnina
Frumkvöðlar fá aðstoð sérfræðinga við að undirbúa fjárfestakynningar og skerpa á viðskiptahugmyndinni. Sigurvegari hérlendis tekur þátt í aðalkeppni Creative Business Cup í Kaupmannahöfn í nóvember. Keppnisréttinum fylgir flug og gisting fyrir tvo fulltrúa fyrirtækisins.
Creative Business Cup er svo miklu meira en bara keppni – þetta er vettvangur sem styður frumkvöðla í skapandi atvinnugreinum, hjálpar þeim að vaxa, tengjast alþjóðlegum fjárfestum, sérfræðingum og mörkuðum.
Erum við að leita að þér?
Óskað er eftir umsóknum frá skapandi frumkvöðlum. Viðskiptahugmyndin verður að hafa sterka tengingu við skapandi greinar, hafa hátt nýsköpunargildi og mikla markaðsmöguleika. Að minnsta kosti einn einstaklingur frá hverju liði verður að hafa menntun eða bakgrunn frá skapandi atvinnugreinum.
Athugið að umsóknarblaðið er á ensku og eiga allar umsóknir að berast á ensku.
Nánari upplýsingar eru á aðalsíðu keppninnar:
