Brautargengi

Brautargengi er námskeið fyrir konur sem vilja hrinda viðskiptahugmynd í framkvæmd og hefja eigin rekstur og fyrir konur sem eru í atvinnurekstri en vilja auka rekstrarþekkingu sína.
Verkefnistengiliðir

Lumar þú á góðri viðskiptahugmynd sem þig langar að þróa áfram, kanna möguleika á að hrinda í framkvæmd, læra um stofnun og rekstur fyrirtækja og læra að koma hugmyndum þínum á framfæri? Þá er Brautargengi fyrir þig. Þú vinnur með hugmyndina þína, skrifar heildstæða viðskiptaáætlun undir leiðsögn sérfræðinga og lærir um stofnun og rekstur fyrirtækja.

Brautargengi er námskeið sem er sniðið sérstaklega að þörfum kvenna sem vilja hrinda viðskiptahugmynd í framkvæmd og hefja eigin rekstur og kvenna sem eru þegar í atvinnurekstri og vilja auka rekstrarþekkingu sína.

Brautargengi í Reykjavík

Upplýsingar veitir Elín Gróa Karlsdóttir í síma 522 9261 eða elingroa@nmi.isNæsta námskeið á Akureyri hefst XX. janúar 2018
Kennt verður einu sinni í viku á miðvikudögum frá kl. 12:00-16:00 
Námskeiðið kostar 50.000 kr. og hægt er að skipta greiðslu í þrjú skipti

Brautargengi á Suðurnesjum

Upplýsingar veitir Anna Guðný í síma 522 9431 / 897 4846 eða annagudny@nmi.is
Næsta námskeið á Akureyri hefst XX. janúar 2018
Kennt verður einu sinni í viku á þriðjudögum frá kl. 12:00-16:00
Námskeiðið kostar 50.000 kr. og hægt er að skipta greiðslu í þrjú skipti.

Inntökuskilyrði

Meginskilyrði eru að þátttakandi hafi viðskiptahugmynd til að vinna með, sé að hefja rekstur eða sé nú þegar í rekstri og að þátttakandi skuldbindi sig til þess að vinna að gerð viðskiptaáætlunar sinnar. Eins er skilyrði fyrir þátttöku að nemendur hafi aðgang að tölvu með ritvinnsluforriti (word) og töflureikni (exel). Reiknað er með nemendur hafi með sér eigin tölvu í allar kennslustundir (eða semji um að fá lánaða tölvu hjá Nýsköpunarmiðstöð).

Markmið

  • Þátttakendur ljúki við vinnu að eigin viðskiptaáætlun

  • Öðlist þekkingu á grundvallaratriðum við stofnun fyrirtækis

  • Fái hagnýta þekkingu á þeim þáttum sem lúta að fyrirtækjarekstri s.s. markaðsmálum, fjármálum og stjórnun

  • Aukin tengsl

Kennslufyrirkomulag

Fyrirlestrar, verkefnavinna og heimavinna. Þátttakendur fá einnig handleiðslu hjá starfsmönnum Impru.  Brautargengi er 90 kennslustunda námskeið sem kennt er einu sinni í viku í 4 klst. í senn, samtals í 15 vikur. Námskeiðið eru haldið tvisvar á ári, á haust og vorönn og hefst það í febrúar og september ár hvert.

Námsefni:

  • Markviss uppbygging þátttakenda

  • Stefnumótun

  • Stjórnun og starfsmannamál

  • Markaðsmál

  • Fjármál

  • Tölvuvæðing og internetið

  • Hagnýt atriði við stofnun og rekstur fyrirtækis

Innifalið

  • Kennsla og leiðsögn

  • Námsgögn

  • Verkefnamappa

  • Kaffi og meðlæti

  • Handleiðsla 

Staðreyndir um Brautargengi

Brautargengi hóf göngu sína 1996 í Reykjavík en 2003 var það haldið í tíunda sinn og þá í fyrsta skipti á landsbyggðinni þar sem samkennt var á milli Akureyrar, Ísafjarðar og Egilsstaða.

Rúmlega 1000 konur hafa lokið Brautargengi og skrifað heildstæða viðskiptaáætlun í kringum viðskiptahugmynd sem þær hafa. Samkvæmt niðurstöðum könnunar sem gerð var árið 2005 á árangri Brautargengis eru nú 50 - 60% kvenna sem lokið hafa Brautargengisnámi með fyrirtæki í rekstri og telja flestar að námskeiðið hafi skipt mjög miklu máli varðandi það hvort þær færu af stað með rekstur. Einnig telur mikill meirihluti þeirra að þær séu mun hæfari stjórnendur eftir að hafa lokið náminu. Um og yfir 90% þátttakenda segjast geta mælt með Brautargengisnáminu við vinkonur sínar.

Kannanir okkar sýna einnig að hluti þátttakenda er háskólamenntaður og flest fyrirtækin sem stofnuð hafa verið eða eru í bígerð eru í verslun og þjónustu. Flest þessara fyrirtækja eru með 10 starfsmenn eða færri en þó eru nokkur með yfir 30 starfsmenn. Óhætt er því að segja að Brautargengisnám komi atvinnulífinu til góða þar sem kraftar kvenna nýtast í störfum sem annars hefðu ekki orðið til. Sérfræðingar hafa bent á það að undanförnu að mikilvægt sé að nýta krafta kvenna þar sem á íslenskum vinnumarkaði eru einungis um 27% sjálfstæðra atvinnurekenda konur.