Nýsköpunarkeppni grunnskólanna
NKG hefst á haustin og lýkur á vorin með vinnusmiðju þar sem þátttakendur í úrslitum fá tækifæri til að útfæra hugmyndir sínar frekar með aðstoð leiðbeinenda frá Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og annarra samstarfsaðila. Í kjölfarið er haldið lokahóf þar sem forseti Íslands afhendir stórglæsileg verðlaun og viðurkenningarskjöl.
Eigandi NKG er Mennta- og menningarmálaráðuneytið en Nýsköpunarmiðstöð Íslands sér um rekstur keppninnar í samstarfi við Háskólann í Reykjavík, Háskóla Íslands, Menntamálastofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga, Arion banka, Samtök Iðnaðarins, ELKO, IKEA, grunnskóla o.fl. aðila.
Tilgangur og markmið NKG
-
Virkja sköpunarkraft barna í landinu
-
Gera börnum grein fyrir sköpunargáfu sinni og þroska hana í gegnum vinnu með eigin hugmyndir
-
Efla og þroska frumkvæði þátttakenda í NKG og styrkja þannig sjálfsmynd þeirra
-
Efla nýsköpunarstarf í grunnskólum og vekja athygli á hugviti barna í skólum og atvinnulífi
Framtíðarsýn NKG
-
Er að fjölga grunnskólum sem taka þátt – allir grunnskólanemendur landsins eiga að hafa tækifæri til að senda inn hugmynd
-
Að það verði tengiliður frá hverjum grunnskóla sem sinnir móttöku gagna og kemur upplýsingum til kennara og nemenda skólanna
- Að tryggt verði rekstrarfjármagn til framtíðar í samstarfi við ríki, stofnanir og fyrirtæki