Loftslagsmót, stefnumót fyrirtækja um loftslagsmál
24. janúar 2020
Loftslagsmót er vettvangur fyrir fyrirtæki sem leitast eftir eða bjóða upp á ráðgjöf og lausnir, á sviði umhverfis- og loftslagsmála. Hér er átt við hverskyns lausnir sem styðja við umhverfisvænni rekstur.
Markmið viðburðarins eru að:
- Hvetja fyrirtæki til að kynna sér þær grænu lausnir sem eru í boði.
- Bjóða fyrirtækjum upp á vettvang til að kynna sínar lausnir og þjónustu.
- Stuðla að jákvæðum aðgerðum í rekstri fyrirtækja í þágu loftslagsmála.
Allir sem skrá sig hafa þann kost að bóka fundi með öðrum þátttakendum á Loftslagsmótinu. Loftslagsmót 2020 leiðir saman fyrirtæki, frumkvöðla og aðra úr atvinnulífinu á stuttum örfundum til að ræða málin og kynnast grænum lausnum við hæfi.
Loftslagsmót 2020 er haldið í Gullteig á þann 3. mars, á Grand Hótel Reykjavík kl. 9-12. Nauðsynlegt er að skrá sig til að taka þátt.
Viðburðurinn er haldinn af Grænvangi og Nýsköpunarmiðstöð, í samstarfi við Festu og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið.

