Mosaflísar frá MR unnu Mema - Nýsköpunarhraðal framhaldsskólanna
Nýsköpunarhraðall framhaldsskólanna (Mema) náði hámarki með verðlaunaafhendingu í ráðhúsi Reykjavíkur á fimmtudag. Fimm teymi framhaldsskólanemenda frá jafnmörgum framhaldskólum unnu að spennandi hugmyndum og frumgerðum, og kepptu um einnar milljónar króna verðlaunafé sem Veitur ofh stóðu straum af.
Sigurvegarinn í Mema – Nýsköpunarhraðli framhaldsskólanna árið 2019 var teymi frá MR sem þróaði svokallaðar Mosaflísar, utanhússklæðningu sem hvetur til mosagróðurs á lóðréttum fleti, sem er bæði til að binda kolefni sem og bæta ásýnd á stórhýsum á borð við verksmiðjur, umferðarmannvirki eða opinberar byggingar.
Borgarholtsskóli bjó til búnað sem hægt er að nota til að regla blágrænar lausnir, þ.e. að veita réttu magni í jarðveginn með snjallri lögn.
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti þróaði smáforrit þar sem notendur geta leyst áskoranir í daglegu lífi sem hvetja til aukinnar umhverfisvitundar. Aðaláherslan þar var á matarsóun.
Menntaskólinn við Hamrahlíð bjó til ruslatunnu fyrir lífrænan úrgang úr mýsli, þ.e. úr svepp.
Tækniskólinn bjó til smáforrit sem hvetur til aukinna hjólreiða, þar sem fyrirtæki og skólar geta stutt við heilbrigðari og umhverfisvænni lífstíl starfsmanna sinna.
Nýsköpunarhraðallinn styðst við hugmyndafræði hönnunarsprettar þar sem hugmyndir eru útfærðar eftir viðurkenndum nýsköpunaraðferðum alþjóðlegra tæknifyrirtækja. Að hönnunarspretti loknum þróuðu öll teymin frumgerðir að hugmyndum sínum með aðstoð sérfræðinga frá háskólasamfélaginu, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Fab Lab Reykjavík. Teymin fá áskorun sem valin er út frá heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og að þessu sinni einbeittu nemendur sér að áskorunum í loftslagsmálum.
Menntamaskína er nýsköpunarhraðall sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Fab Lab standa að í samstarfi við Háskóla Íslands.

