Ræsing Norðurlands vestra
Nýsköpunarmiðstöð Íslands í samstarfi við Samband sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, leitar að góðum viðskiptahugmyndum sem auka við flóru atvinnulífs í sveitarfélögunum. Þátttakendur fá leiðsögn og fræðslu um hugmyndavinnu, vöru- og þjónustuþróun, fjármögnun og áætlanagerð. Verkefnið verður unnið í júní og verða áætlanir rýndar í ágúst.
Umsóknarfrestur er til og með 24. maí.
Besta viðskiptahugmyndin fær allt að 1.000.000 kr. í verðlaun.
Umsóknarform er hér að finna á upplýsingasíðunni um Ræsingu Norðurlands vestra
Frekari upplýsingar veita þau Anna Guðný Guðmundsdóttir annagudny@nmi.is og Sigurður Steingrímsson, sigurdurs@nmi.is
Þess má geta að tvö verkefni sem fengu styrk úr Tækniþróunarjóði nýlega tóku þátt í Ræsingu Suðurnesja sem Nýsköpunarmiðstöð hélt í samvinnu við Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum og Hekluna atvinnuþróunarfélag. Annað þeirra er „Hafmeyjan - þarabað og heilsulind“ sem Bogi Jónsson stendur að og vinningsverkefnið úr Ræsingu Suðurnesja, Öryggiskrossinn - Merkingar fyrir flugbrautir sem Sigurður Ingi Kristófersson og Hanna María Kristjánsdóttir hafa þróað. Ræsing Skagafjarðar gat síðan af sér verkefnið „Stakkaskipti í útflutningi - Einangrandi umbúðir“.

