Úthlutun styrkja úr verkefninu Stafrænu forskoti 2019
Búið er að úthluta ráðgjafastyrkjum til sex fyrirtækja úr verkefninu Stafrænu forskoti, samtals að upphæð kr. 3.340.000 kr. Styrkirnir eru ætlaðir til kaupa á ráðgjöf við að innleiða stafrænar lausnir hjá fyrirtækjunum en þau hafa öll sótt vinnustofur Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands um stafrænan rekstur og markaðssetningu.
Verkefnin sex eru:
Álfheimar - Borgarfirði eystra
Grímur Kokkur - Vestmannaeyjum
Hallormsstaðaskóli - Hallormsstað
Hríseyjarbúðin - Hrísey
Skútusiglingar - Ísafirði
Vorhús - Akureyri
Stafrænt forskot - markaðssetning á samfélagsmiðlum, er verkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands sem unnið er í samstarfi við landshlutasamtök sveitarfélaga um allt land með stuðningi frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu í gegnum byggðaáætlun. Verkefnastjórar eru Arna Lára Jónsdóttir og Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir.
Öll fyrirtæki geta nýtt tækifæri sem liggja í því að nýta stafræna tækni í markaðssetningu og rekstri. Þau fyrirtæki sem taka þátt í vinnustofunum hafa kost á að sækja um þennan styrk og verður næsta úthlutun eftir ár. Næstu vinnustofur eru á Selfossi, Sauðárkróki og á Húsavík í janúar og febrúar. Nánari upplýsingar eru að finna á forskot.nmi.is