Árshátíð 2021 - Flúðir

Föstudaginn 28. maí verður blásið til árshátíðar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands 2021 -  nú er stefnan sett á Flúðir!

Frítt verður fyrir starfsmenn og 2.500 krónur fyrir maka. Skráið ykkur hér að neðan sem allra fyrst!

Bankareikningur: 0116-26-020909; kt. 520696-2459 (ef maki er með í för).

Icelandair Hotel Fludir (Ísland Flúðir) - Booking.com

Föstudaginn 28. maí ætlum við að hittast í Friðheimum kl. 13:00 og borða saman hádegisverð, þ.e. frægu tómatsúpuna og brauðin þeirra. Síðan höldum við á Icelandair hótelið á Flúðum og tékkum okkur inn.

Svo er ætlunin að fara í gömlu laugina á Flúðum - Takið því með ykkur sundföt ef þið ætlið að baða ykkur!

Um kvöldið verður sameiginlegur hátíðarkvöldverður á hótelinu.

Tilvalið að nota laugardaginn í útiveru. Mjög fallegar gönguleiðir eru allt í kring. Gott að heimsækja Gullfoss og Geysi nú þegar að lítið er um erlenda ferðamenn og síðan er frábær golfvöllur á Flúðum.

Starfsmannafélagið og Nýsköpunarmiðstöð bjóða upp á gistingu með morgunverði og hátíðarkvöldverði á Icelandair hótelinu að Flúðum, tómatsúpuhlaðborð á Friðheimum og aðgengi í gömlu laugina á Flúðum.