Creative Business Cup fyrir skapandi frumkvöðla
Nýsköpunarmiðstöð Íslands óskar eftir umsóknum frá skapandi frumkvöðlum til að taka þátt í alþjóðlegu frumkvöðlakeppninni Creative Business Cup sem haldin verður 29. júní - 2. júlí 2019. Opið er fyrir umsóknir til 5. maí.
Viðskiptahugmyndin verður að hafa sterka tengingu við skapandi greinar, hafa hátt nýsköpunargildi og mikla markaðsmöguleika. Að minnsta kosti einn einstaklingur frá hverju liði verður að hafa menntun eða bakgrunn frá skapandi atvinnugreinum.Nýsköpunarmiðstöð Íslands leitar að öflugu frumkvöðlafyrirtæki
Frumkvöðlar fá aðstoð sérfræðinga við að undirbúa fjárfestakynningar og skerpa á viðskiptahugmyndinni. Sigurvegari hérlendis tekur þátt í aðalkeppni Creative Business Cup í Kaupmannahöfn 29. júní - 2. júlí 2019. Undirbúningur og skráning er 29. - 30. júní og sjálf keppnin 1. - 2 júlí.
Keppnisréttinum fylgir flug og gisting fyrir tvo fulltrúa fyrirtækisins. Creative Business Cup er svo miklu meira en bara keppni – þetta er vettvangur sem styður frumkvöðla í skapandi atvinnugreinum, hjálpar þeim að vaxa, tengjast alþjóðlegum fjárfestum, sérfræðingum og mörkuðum.
Erum við að leita að þér?

