Hugmyndasamkeppni um varmaorku á Suðurlandi

Myndin er tekin við undirritun samstarfssamningsins um keppnina.
Á myndinni eru f.v. Próf. Þorstein…
Myndin er tekin við undirritun samstarfssamningsins um keppnina.
Á myndinni eru f.v. Próf. Þorsteinn I. Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Sigríður Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri, Berglind Rán Ólafsdóttir, Orku náttúrunnar og Bjarni Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga.

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS), Nýsköpunarmiðstöð Íslands (NMÍ) og Orka náttúrunnar (ON) hafa gert með sér samkomulag um að efna til hugmyndasamkeppni um nýtingu varmaorku á Suðurlandi á þessu ári. 

Tilgangur samkeppninnar er að fá fram hugmyndir um nýtingu varmaorku sem víða finnst í formi jarðhita á Suðurlandi og býður upp á fleiri tækifæri en nýtt eru í dag. Markmiðið er að nýta betur verðmætin sem eru í orkunni, auka fjölbreytni í atvinnulífi með umhverfismál að leiðarljósi og vinna að nýsköpun í orkutengdri starfsemi. 

Dómnefnd skipa eftirtaldir aðilar: 

  • Gunnar Þorgeirsson, formaður SASS
  • Sigurður Þór Sigurðsson, formaður Atorku
  • Berglind Rán Ólafsdóttir, forstöðumaður fyrirtækjamarkaða ON
  • Sigríður Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri NMÍ
  • Albert Albertsson, stjórnarformaður Íslenska jarðvarmaklasans

 Haraldur Hjaltason, ráðgjafi hjá Artemis, hefur verið ráðinn sem verkefnisstjóri og mun hann starfa með dómnefndinni. Samkeppnin sjálf verður auglýst þegar nær dregur.

 - - - - -  - - - - - - -  - - -  - - - -  -

Nánari upplýsingar veita:

Bjarni Guðmundsson, framkvæmdastjóri SASS bjarni@sudurland.is

Sigríður Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, si@nmi.is

- - - - - - - - - -

 

Stafrænt forskot

Stafrænt forskot

Stafrænt forskot er safn af vefritum og ókeypis vinnustofum sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands býður fyrirtækjum til að hjálpa þeim að hagnýta vef, samfélagsmiðla og aðra stafræna tækni í markaðsmálum og rekstri.
Þorsteinn I. Sigfússon og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir fagna opnun vefsins um Stafrænt forskot.

Stafrænt forskot fyrir íslensk fyrirtæki

Ráðherra iðnaðar- og nýsköpunarmála, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, hleypti í dag af stokkunum svokölluðu Stafrænu forskoti íslenskra fyrirtækja.