Stafrænt forskot fyrir íslensk fyrirtæki
Ráðherra iðnaðar- og nýsköpunarmála, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, hleypti í dag af stokkunum svokölluðu Stafrænu forskoti íslenskra fyrirtækja.
Stafrænt forskot er safn af vefritum og vinnustofum sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands býður fyrirtækjum til að hjálpa þeim að hagnýta vef, samfélagsmiðla og aðra stafræna tækni í markaðsmálum og rekstri. Allt efnið á vefnum, bæði vefrit og vinnustofur verða án endurgjalds á vefslóðinni forskot.nmi.is/
Ráðherrann sagði við þetta tækifæri:
„Stafrænt forskot getur verið fyrsta - og kannski mikilvægasta - skref fyrirtækja í átt að forskoti í alþjóðlegri samkeppni. Þegar kemur að stafrænu forskoti er nefnilega ekki spurt um stærð eða staðsetningu fyrirtækis. Þar er það þekking og dugnaður sem skiptir öllu. Hér er þekkingin – ykkar er dugnaðurinn.“
Stafrænt forskot er afurð samstarfs sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur tekið uppp við kollega sína hjá Business Gateway í Skotlandi. Stór hluti efnisins er staðfærður og aðlagaður íslenskum aðstæðum úr sambærilegu efni sem hefur verið í boði í Skotlandi.
Mælt er með því að fyrirtæki taki fyrst örstutta stafræna könnun til þess að finna út hvar fyrirtækið er statt. Niðurstaðan úr könnuninni er notuð til að velja þau vefrit sem fyrirtækið þarf helst á að halda til að komast á næsta stig í stafrænum rekstri og markaðssetningu. Gestir á vefnum forskot.nmi.is á vefnum er að sjálfsögðu frjálst að skoða sig um og hlaða niður þeim vefritum sem þá langar helst að lesa.
Starfsmenn Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands munu halda áfram að bæta við efni á þennan vef.