Námskeið fyrir konur af erlendum uppruna
01. febrúar 2018
Fyrir jólin útskrifuðust tveir hópar af Brautargengi á Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Í öðrum hópnum voru konur af erlendum uppruna en námskeiðið var haldið í samvinnu við Vinnumálastofnun og Félag kvenna af erlendum uppruna.
Brautargengi er námskeið fyrir konur sem vilja hrinda viðskiptahugmynd í framkvæmd og hefja eigin rekstur og fyrir konur sem eru í atvinnurekstri en vilja auka rekstrarþekkingu sína.
Næsta Brautargengisnámskeið hefst í lok janúar, nánari upplýsingar veita Elín Gróa Karlsdóttir í síma 522 9261 eða elingroa@nmi.is og Anna Guðný í síma 522 9431 / 897 4846 eða annagudny@nmi.is

