Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2019

Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar verður haldin í Hörpu, föstudaginn 1. nóvember 2019. Ráðstefnan er nú haldin í átjánda sinn en henni er ætlað að endurspegla afrakstur hluta þess rannsókna- og þróunarstarfs, sem styrkt er af rannsóknasjóði Vegagerðarinnar.

Tveir starfsmenn Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands flytja  erindi á ráðstefnunni. Ólafur Wallevik fjallar um umhverfisvæna brúarsteypu og Gísli Guðmundsson um samsetningu og uppruna svifryks í Hvalfjarðargöngunum.

Vegagerðin vinnur að innleiðingu Grænna skrefa í ríkisrekstri og hvetur þátttakendur til huga að lágmörkun umhverfisáhrifa, svo sem með notum á vistvænum ferðamáta til og frá ráðstefnunni og með því að taka þátt í úrgangsflokkun á staðnum.

Frestur til að skrá sig er til og með 30. október 2019. Þátttökugjald er 16.000 krónur og 4.500 krónur fyrir nema og eftirlaunaþega.

Skráning á rannsóknaráðstefnu Vegagerðarinnar 2019

Dagskrá ráðstefnunnar

09:15-09:45
Hvað mun okkur finnast? - Um gildismat framtíðarinnar, Bergur Ebbi, rithöfundur, ljóðskáld og ritgerðarsmiður.

09:45-10:00
Notkun Coltrack við að gera malarvegi að bundu slitlagi á Íslandi, Björk Úlfarsdóttir, Malbikunarstöðin Hlaðbær Colas HF

10:00-10:15
Endurvinnsla frálagsefna í vegagerð, Þorbjörg Sævarsdóttir, EFLA

10:15-10:45 Kaffi
10:45-11:00Umhverfisvæn brúarsteypa, Ólafur Wallevik, Rannsóknarstofa byggingariðnaðarins á Nýsköpunarmiðstöð Íslands

11:00-11:15
Úttektir og ástandsmat klæðinga á Vestfjörðum, Pétur Pétursson, PP-ráðgjöf

11:15-11:30
Burðargeta steyptra brúa - brotprófun brúar á Steinavötn, Guðmundur Valur Guðmundsson, Vegagerðin

11:30-11:45
Þróun á kerfi sjávarborðsmælinga, G.Orri Gröndal, Vegagerðin

11:45-12:00
Umræður og fyrirspurnir

12:00-13:00
Matur

13:00-13:15
Mikilvægi mótlægra umferðarljósa, Haraldur Sigþórsson, VHS

13:15-13:30
Slysagreining. Ávinningur af óhindruðum beygjustraumum. Anna Guðrún Stefánsdóttir, Verkís

13:30-13:45
Rannsóknarverkefni um mat á tíðni rauðljósaaksturs, Berglind Hallgrímsdóttir, EFLA

13:45-14:00
Áhrif 5G á samgönguinnviði í framtíðinni, Hrönn Karolína Sch. Hallgrímsdóttir, Mannvit

14:00-14:15
Samflutningur farþega og farms - bættar almenningssamgöngur á landsbyggðinni, Andreas Macrander, Hjólafærni, Sesselja Traustadóttir, Hjólafærni og Ingi Gunnar Jóhannsson, Hugarflug ehf

14:15-14:30
Áreiðanleiki hviðuspáa í Harmonie-Arome líkaninu, fylgni spáa, viðvarana og mælinga, Elín Björk Jónasdóttir og Ingibjörg Jóhannesdóttir, Veðurstofan

14:30-14:45
Umræður og fyrirspurnir

14:45-15:15
Kaffi

15:15-15:30
Greining á kerfum og vinnuumhverfi í vaktstöð Vegagerðarinnar, Halla Katrín Svölu- og Arnardóttir, EFLA

15:30-15:45
Rafbílar - áhrif á hljóðstig og tíðniróf, Ólafur Daníelsson, EFLA

15:45-16:00
Losun svifryks frá gatnakerfinu á höfuðborgarsvæðinu - ferlar og líkan [erindi flutt á ensku], Brian Barr, Háskóla Íslands

16:00-16:15

Samsetning og uppruni svifryks í Hvalfjarðargöngunum, Gísli Guðmundsson, Nýsköpunarmiðstöð Íslands
16:15-16:30
Greining á samfélagslegum og hagrænum ávinningi bættra samgangna - rýni á rannsóknaraðferðum, Eva Dís Þórðardóttir, EFLA
16:30-16:45
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og Vegagerðin, Bryndís Skúladóttir, VSÓ

16:45-17:00
Umræður og fyrirspurnir

17:00
Ráðstefnuslit, léttar veitingar í boði Vegagerðarinnar

Fram á völlinn

Fram á völlinn

Kynningarfundur um verkefnið Fram á völlinn verður haldinn á Félagsheimilinu Árblik, mánudaginn 14. október kl. 17:00 Markmið verkefnisins er að hvetja til nýsköpunar í sveitum landsins og efla þannig fjölbreytni í atvinnulífi og auka lífsgæði. Verkefnið er opið öllum íbúum í sveit og verður í boði í Þingeyjarsýslum og Dölum í haust.
Nýsköpunarverðlaun Íslands 2019 - Curio

Curio hlýtur Nýsköpunarverðlaun Íslands árið 2019

Fyrirtækið Curio hlaut Nýsköpunarverðlaun Íslands 2019 sem afhent voru á Nýsköpunarþingi fyrir troðfullu húsi á Grand Hótel Reykjavík í dag. Curio er nýsköpunarfyrirtæki sem vinnur að þróun fiskvinnsluvéla sem auka nýtingu og skila betri afurð í vinnslu á bolfiski í afhausun, flökun og roðflettingu, ásamt því að hafa öryggismál og þrif að leiðarljósi.