Fram á völlinn
Kynningarfundur um verkefnið Fram á völlinn verður haldinn á Félagsheimilinu Árblik, mánudaginn 14. október kl. 17:00
Markmið verkefnisins er að hvetja til nýsköpunar í sveitum landsins og efla þannig fjölbreytni í atvinnulífi og auka lífsgæði.
Verkefnið er opið öllum íbúum í sveit og verður í boði í Þingeyjarsýslum og Dölum í haust.
Verkefnið, Fram á völlinn er samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Framleiðnisjóðs landbúnaðarins og Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins og kemur í kjölfar verkefnisins Gríptu boltann sem Framleiðnisjóður stóð að. Markmið verkefnisins er að hvetja til nýsköpunar í sveitum landsins og efla þannig fjölbreytni í atvinnulífi og auka lífsgæði.
Verkefnið nær til landsins alls en framkvæmdin verður á afmörkuðum svæðum hverju sinni.
Þátttakendur
Verkefnið er opið öllum íbúum í sveit. Verkefni geta verið af fjölbreyttum toga og í öllum atvinnugreinum. Gerð verður krafa um að þátttakendur skuldbindi sig til að vinna að sköpun eigin atvinnutækifæris meðan á verkefninu stendur.
Nánari upplýsingar eru á vefsíðu verkefnisins og þar er einnig hægt að sækja um.

