Ró-box úr Tækniskólanum vann keppnina Ungir frumkvöðlar
Það var ekki auðvelt verk fyrir dómnefnd að velja sigurvegara, í hinum ýmsu flokkum, á úrslitahátiðinni. Er óhætt að segja að það sé hreinlega með ólíkindum hversu flott fyrirtæki og hugmyndir, íslenskir framhaldskólanemendur hafa náð að galdra fram á þessari vorönn. Þó svo að ekki öll fyrirtækin hafi náð að krækja i verðlaun, eiga þau þó tvímælalaust framtíðina fyrir sér og væri óskandi að sem flest fyrirtækjanna haldi starfi sínu áfram. Við óskum þeim velfarnaðar.
En dómnefnd þurfti að velja og hér eru niðurstöður hennar:
Fyrirtækið Ró-box, úr Tækniskólanum, var valið fyrirtæki ársins í samkeppni Ungra frumkvöðla 2019. Mun Róbox keppa fyrir hönd Íslands, í Evrópukeppni Ungra frumkvöðla, sem fram fer í Lille í Frakklandi í júlí.
Á myndinni fyrir ofan er sigurliðið Ró-box. Frá vinstri: Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir – Markaðsstjóri, Hannes Árni Hannesson – Fjármálastjóri, Kristín Dóra Sigurðardóttir – Hönnunarstjóri, Ísar Loki Pálmason – Framkvæmdarstjóri og Erna Ástþórsdóttir, kennari þeirra. Á myndina vantar Ásþór Björnsson – Vörustjóra Ró-box
Sigurvegara í öðrum flokkum, má sjá í töflunni hér:
Fyrirtæki ársins – 1. sæti
Ró-Box - Tækniskólinn
Ró-Box selur róbota-kit fyrir krakka. Róbota-kittin eru einföld, með Íslenskum leiðbeiningum og hjálpa krökkum að læra á tækni og forritun.
Fyrirtæki ársins – 2. sæti
Blakkur - Borgarholtsskóli
Beisli (höfuðleður) fyrir hesta með áfestum nasamúl eða reiðmúl. Þannig að 2 hlutir verða að einum.
Fyrirtæki ársins – 3. sæti
Karma - Menntaskólinn í Kópavogi
Snyrtivara okkar er maskari en ekki þessi venjulegi maskari sem að hægt að kaupa í öllum búðum sem selur snyrtivörur. Okkar maskari kemur í köku formi og leggjum við áherslu að formúlan er úr náttúrulegum efnum sem eru ekki slæm fyrir augnhárin.
Besta matvælafyrirtækið
Gen-yo - Kvennaskólinn í Reykjavík
Heimagert Collagen jógúrt
Bestu markaðsmálin
Hafmey - Menntaskólinn við Sund
Við hjá Hafmey erum að þróa umhverfisvænar og nýtískulegar töskur framleiddar úr endurnýttri loðnunót en töskurnar eru klæddar efni að innan, svo hægt er að nota þær undir stóran sem smáan varning.
Umhverfisvænasta lausnin
Vei! - Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
Kolsýrður mysudrykkur, eingöngu úr náttúrulegum afurðum
Besta tæknilausnin
iRadar - Verslunarskóli Íslands
Hugbúnaður hannaður til þess að hjálpa fyrirtækjum að koma upplýsingum til neytenda.
Besta hönnunin
A Bag Project - Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
Hliðar- og mittistöskur úr efni frá Seglagerðinni Ægi
Samfélagsleg nýsköpun
Tilfinningamolar - Borgarholtsskóli
Tilfinninga molinn er kubbur sem er hjálpartæki fyrir leiðbeinanda/kennara til að eiga auðveldara með að ræða opinskátt um tilfinningar ungra barna. Með kubbnum fylgir leiðbeiningabæklingur sem inniheldur ýmsa fræðslu og leiki hvernig má nota kubbinn.
Besti Sjó-bisnessinn
HAF sjávarsprey - Verslunarskóli Íslands
Íslenskt sjávarsprey í hárið unnið úr íslensku sjávarsalti og þangi sem líkist „beach spray“ erlendis
Besta fjármálalausnin
Ungdómur - Fjölbrautaskólinn við Ármúla
Ungdómur er kennslu- og upplýsinga vefsíða sem fræðir ungt fólk um fjárhagslega ábyrð.
Áhugaverðasta nýsköpunin
Fruss bókaútgáfa - Menntaskólinn við Hamrahlíð
Við teljum að málflótti sé stærsti dragbítur íslenskunnar í dag og til að sporna gegn honum þarf að hvetja börn til máls og tryggja að þau hafi aðgang að efni hvarvetna sem veitir þeim sjálfstraust til að tjá sig. Viljum við í Fruss gera þeim kleift að brýna tungutakið svo þau treysti á mál sitt og megin.
Fallegasti sýningarbásinn
Sylque - Verslunarskóli Íslands
Framleiðum 100% silkikoddaver sem sporna gegn fitumyndun í húð og hári og minnka líkur á hrukkumyndun.

