Samvinna við Færeyjar og Grænland í frumkvöðlamálum og nýsköpun

Hópur Færeyinga kom í heimsókn til Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands á dogunum, til að kynnast starfseminni og stuðningi miðstöðvarinnar við frumkvöðla. Einnig fengu þeir kynningu á þeim verkefnum sem eru í gangi á sviði menntamála og Evrópumiðstöðvar. Færeyingar eru að vinna fjölbreytt starfi heima fyrir, þar á meðal með rekstur frumkvöðlasetra, annan stuðning við frumkvöðla og utanumhald um nýsköpunarkeppni í grunn- og framhaldsskólum. Eyjólfur B. Eyjólfsson fór yfir allt það sem Nýsköpunarmiðstöðin er að gera í nýsköpunar- og frumkvöðlamenntun, sagði frá þeim 5 keppnum sem miðstöðin kemur að , ásamt útgáfu námsefnis, fyrir öll skólastig. Kjartan Due Nielsen sagði frá starfi og þjónustu Evrópumiðstöðvar.
Nýsköpunarmiðstöð hefur unnið með Færeyingum í NORA verkefnum þar sem sem Grænlendingar og Norðmenn hafa einnig komið að. Nú um stundir erum unnið að útgáfu og þýðingu á handbók fyrir frumkvöðla. Hún hefur verið gefin út á dönsku og grænlensku og nú er unnið að því að fá hana þýdda yfir á færeysku og íslensku. Einnig eru Íslendingar, í samstarfi við Færeyjar og Grænland, að sækja um styrk til NORA til að vinna að verkefni, þvert á milli landanna þriggja.
Í lok kynningar, kom fram mikill áhugi á nánara samstarfi á milli frændþjóðanna og var t.d. ákveðið að hefja formlegt samstarf á milli frumkvöðlasetranna í Færeyjum og Íslandi, kanna möguleikann á að vinna saman að nýsköpunar- og frumkvöðlamenntun og bjóða færeyskum frumkvöðlum, upp á þá þjónustu Evrópumiðstöðvar.

