Snjallvæðing og loftslagsmál á Nýsköpunarmóti Álklasans

Fjórir háskólanemar fengu hvatningarviðurkenningar á vel sóttu Nýsköpunarmóti Álklasans í hátíðarsal Háskóla Íslands. Snjallvæðing, loftslagsmál og hringrásarhagkerfið voru ofarlega á baugi í þeim erindum sem flutt voru á mótinu og endurspegluðust þær áherslur í þeim nemendaverkefnum sem fengu viðurkenningu.

Það var Guðbjörg Óskarsdóttir, framkvæmdastjóri Álklasans sem veitti verðlaunin og vakti af því tilefni máls á hugmyndagátt á heimasíðu Álklasans, þar sem háskólanemar geta sótt hugmyndir að verkefnum. Nemendurnir sem fengu hvatningarviðurkenningar í ár eru:  

Caroline Mary Medion (HR): Improving Current Efficiency in L-T Aluminum Electrolysis with Vertical Inert Electrodes.

Diljá Heba Petersen (HÍ): Endurnýtingarmöguleikar slaggs frá kísiljárnframleiðslu.

Eymar Andri Birgisson (HR): Sjálfvirknivæðing á kerviðgerðum með tölvusjón

Hinrik Már Rögnvaldsson (HÍ): Flokkunarmódel planaðrar áltöku.

Að hvatningarviðurkenningunni standa fyrirtækin, Mannvit, Efla, Hamar, Snókur, Rio Tinto, Alcoa Fjarðaál, Norðurál og Landsbankinn, en auk þess bjó Álverið í Garðabæ, sem sérhæfir sig í yfirborðsmeðhöndlun á áli, til álviðurkenningarskildi handa viðurkenningarhöfum. 

Í kaffihléi gafst gestum færi á því að bera íslenska álbílinn Ísar augum en hann var frumsýndur á Nýsköpunarmóti Álklasans fyrir tveimur árum síðan og hefur nú tekið miklum breytingum. 

Álklasinn var stofnaður árið 2015 og samanstendur  af um 40 fyrirtækjum og stofnunum tengdum ál og kísiliðnaði. Þetta er í þriðja sinn sem Nýsköpunarmót Álklasans er haldið en að því standa Álklasinn, Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Samtök iðnaðarins og Samál.

Creative Business Cup fyrir skapandi frumkvöðla

Creative Business Cup fyrir skapandi frumkvöðla

Nýsköpunarmiðstöð Íslands óskar eftir umsóknum frá skapandi frumkvöðlum til að taka þátt í alþjóðlegu frumkvöðlakeppninni Creative Business Cup sem haldin verður 29. júní -2. júlí 2019. Opið er fyrir umsóknir til 5. maí. Viðskiptahugmyndin verður að hafa sterka tengingu við skapandi greinar, hafa hátt nýsköpunargildi og mikla markaðsmöguleika. Að minnsta kosti einn einstaklingur frá hverju liði verður að hafa menntun eða bakgrunn frá skapandi atvinnugreinum.Nýsköpunarmiðstöð Íslands leitar að öflugu frumkvöðlafyrirtæki
Nýsköpunarmót

Nýsköpunarmót

Samstarfsverkefni um nýsköpunarútboð á milli Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Ríkiskaupa og fjármála-og efnahagsráðuneytis, var kynnt á innkaupadegi Ríkiskaupa þann 21. mars sl. Verkefnið miðar að því að stuðla enn frekar að nýsköpun í opinberum útboðum.