Undirritun samnings um stuðning við frumkvöðla
14. nóvember 2019

Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir verkefnastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar og frumkvöðlarnir Svala Jónsdóttir og Rósa Dögg.
Stjörnusprotar er verkefni sem Nýsköpunarmiðstöð er að setja á laggirnar. Verkefnið miðar að því að styðja fyrirtæki/frumkvöðla um leiðsögn og faglegan stuðning í gegnum fyrstu skref frumkvöðla. Þetta er fjórði samningurinn um klæðaskerasaumaða aðstoð við frumkvöðla.
Þær Svala Jónsdóttir og Rósa Dögg skrifuðu undir samning um leiðsögn og faglegan stuðning Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands við viðskiptahugmynd þeirra í dag.

