Vel sótt ráðstefna um loftgæði, loftræsingar, innivist og vistvottun
Húsfyllir var á ráðstefnu um loftgæði, loftræsingar, innivist og vistvottun sem haldin var af Grænni byggð og Rannsóknastofu byggingariðnaðarins við Nýsköpunarmiðstöð Íslands, í samvinnu við Mannvirkjastofnun og Verkfræðingafélag Íslands.
Björn Marteinsson, dósent við HÍ og sérfræðingur Rb fjallaði um Áskoranir varðandi loftræsingu og orkunýtni. Í máli hans kom meðal annars fram að þörf sé á rannsóknum sem snúa að rakaíbætingu innilofts því eingöngu er til ein rannsókn sem gerð var með því tilliti fyrir 25 árum síðan. Björn gerði könnun á vordögum hjá afmörkuðum hópi fólks til að kanna ástand innilofts og reyndist niðurstaða hennar sýna töluverða hækkun miðað við það sem áður hafði mælst
Lykill í að eyða rakavandamálum og skaðlegt inniloft
Ólafur H. Wallevik, HR og forstöðumaður Rb hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands fór yfir mikilvægi nýsköpunar og rannsókna á sviði málaflokksins. Ólafur lagði áherslu á að vanda yrði vel val á nýjum aðfluttum byggingarvörum og aðferðum þar sem Ísland er staðsett á erfiðu veðrasvæði og byggingarlausnir ekki alltaf sjálfkrafa gjaldgengar á milli landa
Miklar umræður sköpuðust um gæði og áhrif loftræsikerfa á íbúðar og atvinnuhúsnæði með tilliti til innilofts og loftgæða. Farið var yfir mismunandi gerðir og uppsetningaraðferðir á ólíkum kerfum og kosti og galla þeirra.
Að auki voru eftirfarandi fyrirlestrar fluttir:
Sveinn Áki Sverrisson, véltæknifræðingur, VSB verkfræðistofa: Orkuhermun og raunnotkun – Er gott samhengi þar á milli?
Brynjar Örn Árnason, verkfræðingur, EFLA: Loftræsilausnir í BREEAM verkefnum
Loftræsing og loftgæði í skólum: Svansvottaður skóli á Íslandi
Alma Dagbjört Ívarsdóttir, verkfræðingur, Mannvit
SIMIEN orkuútreikningar fyrir BREEAM verkefni
Bjartur Guangze Hu, verkfræðingur, VSÓ ráðgjöf
Loftgæði og innivist
Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, líffræðingur, EFLA og Rb
Rekstur loftræsikerfa og orkunýtni á Íslandi
Karl H. Karlsson, Blikksmiðjan og HR
Þórhildur Kristjánsdóttir, Ingólfur Bachmann, Kristmann Magnússon tóku þátt í pallborðsumræðum að loknum erindum og spannst nokkur umræða um efni ráðstefnunnar.
Fundarstjóri var Björn Karlsson, forstjóri Mannvirkjastofnunar.

