Vel heppnuðu Loftslagsmóti lokið
Nýsköpunarorkan var allsráðandi á Grand Hótel 3. mars þar sem rúmlega hundrað manns mættu milli kl. 9-12 og tóku þátt í samtals 230 örfundum, en hver fundur stóð yfir í 15 mínútur, á milli nýsköpunarfyrirtækja og stofnanna. Sum fyrirtæki nýttu einnig tækifærið og hittu önnur fyrirtæki með hugsanlegt samstarf í huga. Svokallað ,,Match Making" form var notað til að koma á fundunum, þar sem aðilar skrá inn prófíl sinn á vefsvæði og í kjölfarið bóka fundi með áhugaverðum aðilum.
Markmiðið með Loftslagsmóti var að auka enn frekar nýsköpun í loftslagsmálum og að koma á samtali á milli stofnana, fyrirtækja og frumkvöðla.
Nú verður unnið hörðum höndum að eftirfylgni og vonandi verða til árangursríkar viðræður í kjölfarið sem styrkja fyrirtækin og opinberar stofananir enn frekar.
Viðburðurinn er haldinn af Grænvangi og Nýsköpunarmiðstöð, í samstarfi við Festu og Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið. Þátttakendur voru sammála um það að þetta væri komið til að vera!

