Frábær ársfundur fyrir fullu húsi
Húsfyllir var á ársfundi Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands sem var haldinn á Hilton Reykjavík Nordica og tókst fundurinn með eindæmum vel. Fjölmörg fróðleg erindi voru flutt bæði af starfsmönnum og samstarfsaðilum.
Á myndinni er Hermann Þórðarson að ljúka erindi sínu um mengun á höfuðborgarsvæðinu sem var mæld á gamlárskvöld undir flugeldaskothríð landans.
Forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar talaði um þær fjölmörgu áskoranir sem við stöndum frammi fyrir ef við Íslendingar ætlum að halda stöðu okkar í efnislegum gæðum. Eitt mikilvægasta verkefni okkar væri að nýsköpunarvæða íslensku þjóðina.
Ólafur Wallevik hjá Rb ræddi mygluvandann í erindi sem hét: Á að kveða niður mygludrauginn? Myglu í húsum má rekja til raka, segir Ólafur, en hann sagði jafnframt að íslensk hús „yrðu að þola að standa úti. Ef við viljum ekki láta lögfræðing fylgja hverju húsi, þurfum við að safna landsliði sérfræðinga og koma í veg fyrir raka í íslenskum húsum.“
Kolbrún R. Ragnarsdóttir sagði frá spennandi rannsóknarverkefnum, annarsvegar MEET, sem ætlað er að breyta gömlum olíu- og gasbrunnum yfir í jarðhitaholur. Jafnframt verkefnið GeoCoat, sem snýst um að finna nothæfa lausn til þess að koma í veg fyrir tæringarskemmdir og slit í jarðhitaumhverfi