Gerum okkur mat úr jarðhitanum

Eimur - hugmyndasamkeppni um jarðhita og matvæli á Norðausturlandi
Eimur - hugmyndasamkeppni um jarðhita og matvæli á Norðausturlandi

Hugmyndasamkeppni um matvælaframleiðslu með jarðvarma á Norðausturlandi

Eimur, í samstarfi við Íslensk verðbréf, Matarauð Íslands og Nýsköpunarmiðstöð Íslands kallar eftir hugmyndum sem stuðla að sjálfbærri nýtingu auðlinda á Norðurlandi eystra. Hugmyndir mega vera á hvaða stigi sem er og fela í sér allt frá framleiðslu á hráefnum til fullunninnar matvöru.

Jarðhitinn á Norðausturlandi er frábært tækifæri til þess að skapa verðmæti úr sjálfbærri orku. Við óskum eftir tillögum um hvernig við getum nýtt hitann í matvælaframleiðslu. Frumvinnsla, fullvinnsla, hliðarafurðir, hráefni, nýjungar, eitthvað spes, bara hvað sem er. Við viljum heyra þína hugmynd!

Þáttaka er öllum opin og hugmyndin má vera á hvaða stigi sem er. Sérstök áhersla er lögð á sjálfbærni og samvinnu ólíkra aðila.

Skila skal inn veggspjaldi, stærð A1, þar sem fram koma helstu atriði hugmyndarinnar. Eins er æskilegt að tillögunni fylgi greinargerð með nánari umfjöllun. Tillögum skal skila með tölvupósti á tillogur@eimur.is.

Frestur til að skila inn hugmyndum rennur út 15. maí.

Verðlaun

1. verðlaun eru kr. 2.000.000.
2. verðlaun eru kr. 500.000

Hægt er að leita til Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands á Akureyri eftir ráðgjöf um útfærslu og uppsetningu á tillögum í samkeppnina. Nánari upplýsingar gefur Anna Guðný í síma 522 9431 eða annagudny@nmi.is.

Dómnefnd

Dómnefnd skipa Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings, Sigríður Ingvarsdóttir, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Jón Steindór Árnason, Íslenskum verðbréfum, Brynja Laxdal, Matarauði Íslands og Sæmundur Elíasson, Matís.


ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR eru á vef verkefnisins. 

SNÆBJÖRN SIGURÐARSON, FRAMKVÆMDASTJÓRI SNABBI@EIMUR.IS S. 669 8425 KT. 630517 0440

Málþing um vatnsskaða á Norðurlöndum

Málþing um vatnsskaða á Norðurlöndum

Málþing um vatnsskaða á Norðurlöndum var haldið þriðjudaginn 24. apríl kl. 13 til 16 á Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
Bökk-belti valið fyrirtæki ársins í Ungum frumkvöðlum 2018

Bökk-belti fyrirtæki ársins í keppninni Ungir frumkvöðlar

Fyrirtækið Bökk belti, var valið fyrirtæki ársins 2018 í samkeppni Ungra frumkvöðla. 20 fyrirtæki voru valin úr hópi 120 fyrirtækja, til að taka þátt í lokahófi og úrslitum Ungra frumkvöðla 2018.