Íþróttafélög gera samninga við Sportabler
Sportabler er íslenskt vef- og snjallsímaforrit sem gerir skipulagningu og samskipti í íþróttastarfi margfalt skilvirkari og einfaldari. Kerfið er ætlað þjálfurum, iðkendum, foreldrum, og starfsmönnum íþróttafélaga. Breiðablik hefur undanfarna mánuði unnið í samstarfi við Sportabler að þróun og prófun forritsins og hefur innleiðing hjá fyrstu flokkum félagsins gefist vel. Verkefnið hlaut styrk úr Átaki til atvinnusköpunar til þróunar á forritinu.
Markmið Sportabler er að styðja við og efla skipulagt íþróttastarf með tvennum hættir. Annarsvegar með því að auka skilvirkni í skipulags- og samskiptamálum, og hinsvegar með því að bjóða kennsluefni í þjálfun jákvæðra persónuleikaþátta í gegnum íþróttir, þar sem æfingar t.d. í sjálfstrausti eru fléttaðar með markvissum hætti inn í íþróttastarfið. Sportabler starfar með leiðandi íþróttafélögum og stofnunum á Íslandi. Fyrstu íþróttafélögin til að taka Sportabler Organiser í notkun voru Valur og Breiðablik. Á síðustu misserum hafa fleiri félög fylgt í kjölfarið.
Hákon Sverrisson, yfirþjálfari yngri flokka Vals í knattspyrnu: „Sportabler kerfið sparar þjálfurum okkar mikinn tíma í hverri viku við skipulagningu og samskipti í tengslum við íþróttastarfið. Viðburðastjórnun og utanumhald um mætingu leikmanna er allt mun skilvirkara en áður. Viðtökur foreldra og iðkenda hafa verið mjög góðar og er fólk sammála um að Sportabler auðveldi til muna að hafa yfirsýn yfir æfinga- og leikjaplanið”.

