Nákvæmari staðsetning á söfnum

Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Locatify hefur þróað lausn með 20 cm nákvæmni til staðsetningar í söfnum og á sýningarsvæðum. Með hugbúnaðinum er hægt að breyta sjálfvirkt um hljóð- og myndskrár í snjalltækjum á svipstundu við sérhvert skref sem gestur safns tekur, þannig er hægt að bjóða uppá nýja aðferð við að njóta sýninga með gagnvirku efni sem bætir upplifun í safnaheimsóknum. Þessi tækni var sýnd í fyrsta sinn á ráðstefnunni, Follow the Vikings í Snorrastofu í Reykholti á dögunum. 

Ultra WideBand (UWB) tækni sett í nýtt samhengi

Tæknin sem notuð er nefnist á ensku Ultra WideBand (UWB) og hefur verið nýtt í iðnstýringum um árabil þar sem mikillar nákvæmni er krafist en sjálfvirk vélmenni sækja þá vörur af hillum í vöruhúsum. UWB-tæknin hefur til þessa verið dýr og plássfrek en nýlega framleiddi fyrirtækið Decawave á Írlandi litinn tölvukubb sem getur lesið staðsetninguna með þessari tækni sem nú er sett í nýtt samhengi af Locatify. Fyrirtækið fékk verkefnastyrk frá Rannís við þróun lausnarinnar.

Efni sett í vefkerfi, gefið út í smáforriti og virkjast á réttum stöðum

Locatify hefur þróað vefkerfi þar sem hægt er að útbúa leiðsagnir, ratleiki og gagnvirkt upplýsingaefni sem er gefið er út í sérmerktum smáforritum í snjallbúnaði. Þar er hægt að útbúa margmiðlunarefni sem virkjast utanhúss af GPS í 10-15 metra radíus og innanhúss af blátannasendum sem er t.d. notað í Eldheimum í Vestmannaeyjum. Sú lausn gefur um þriggja metra nákvæmi innandyra en krafa kom upp um enn nákvæmari staðsetningu og er UWB-lausnin svar við henni, hún hefur nú verið innleidd í kerfi Locatify. Hluti vörunnar er UWB-sendir, sem í er tölvuflaga og rafhlaða inní armbandi eða hangir í hálsól, sem tengist nemum í hornum sýningarrýmis en tæknin er afar auðveld í uppsetningu.

Gestur á safni gengur um og nýtur sjálfvirkrar leiðsagnar

Gestur á safni getur ýmist fengið búnað í hendur á safni eða notað sinn snjallsíma og UWB-búnaðinn sem hann setur á sig. Gesturinn sækir sérmerkt app safnsins og halar niður efninu á staðnum eða áður en hann mætir.  Síðan gengur viðskiptavinurinn um safnið, er með gólfkort í símanum, sér hvar hann er staðsettur og hljóðleiðsögn kemur sjálfkrafa inn eftir því hvar í rýminu hann er og frekara ítarefni birtist á skjá.  Einnig býður kerfið uppá að hafa ratleik þannig að gesturinn getur leyst þrautir á staðnum og safnað stigum.  Leikurinn er upplagður fyrir skólahópa í safnafræðslu. 

Nýir markaðir opnast

Tæknin opnar nýja markaði og veitir Locatify sérstöðu og forskot á markaði fyrir söfn, gallerí og sýningarsvæði þar sem þörf er á nákvæmri staðsetningu innanhúss. Starfsmenn Locatify kynntu þessa tækni á safnaráðstefnu Museum Next í Rotterdam og sýndu hana jafnframt í vinnusmiðju hjá Museum Ideas í London en mikil áhugi er á tækninni og viðræður eru hafnar um að setja hana upp erlendis. Með því að bjóða viðskiptavinum UWB-lausnina myndar Locatify sér þá sérstöðu að geta boðið bestu staðsetningarþjónustu innanhúss fyrir snjallsíma sem völ er á.

Kynningarfundur um Eurostars áætlunina

Kynningarfundur um Eurostars áætlunina

Kynningarfundur um Eurostars verður haldinn fimmtudaginn 25. janúar á Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Fundurinn hefst klukkan 09:00 og stendur til 10:30 en eftir fund gefst fólki kostur á að eiga fund með fyrirlesurunum.
Námskeið fyrir konur af erlendum uppruna

Námskeið fyrir konur af erlendum uppruna

Fyrir jólin útskrifuðust tveir hópar af Brautargengi á Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Í öðrum hópnum voru konur af erlendum uppruna en námskeiðið var haldið í samvinnu við Vinnumálastofnun og Félag kvenna af erlendum uppruna.