Lón á svörtum sandi fékk fyrstu verðlaun í hugmyndasamkeppni um varmaorku

Ráðherra, dómnefnd, fulltrúar aðstandenda og verðlaunahafar í Garðyrkjuskólanum í Ölfusi.
Ráðherra, dómnefnd, fulltrúar aðstandenda og verðlaunahafar í Garðyrkjuskólanum í Ölfusi.

Hugmyndin „Black Beach Lagoon“ (Lón á svörtum sandi) eftir Martein Möller og Reynar Ottósson, fékk fyrstu verðlaun í hugmyndasamkeppni um nýtingu varmaorku á Suðurlandi. Það voru Orka náttúrunnar, Samtök sunnlenskra sveitarfélaga og Nýsköpunarmiðstöð Íslands sem stóðu að hugmyndasamkeppninni. 

Úrslitin voru kunngerð nýlega við hátíðlega athöfn í Garðyrkjuskólanum í Ölfusi og kom það í hlut Þórdísar Kolbrúnar Gylfadóttur, ráðherra atvinnu-, nýsköpunar- og ferðamála að afhenda verðlaunin.

Tilgangur samkeppninnar var að fá fram hugmyndir um nýtingu varmaorku sem finnst víða á Suðurlandi og býður upp á fleiri tækifæri en nýtt eru í dag. Markmiðið er að nýta betur verðmætin sem eru í orkunni, auka fjölbreytni í atvinnulífi með umhverfismál að leiðarljósi og vinna að nýsköpun í orkutengdri starfsemi.

Verðlaunahugmyndin

Verðlaunahugmyndin snýst um að byggja upp ferðamannalón með heitu vatni í svörtum fjörusandinum við Þorlákshöfn. Í umsögn dómnefndar um Black Beach Lagoonsegir: „Um er að ræða aðdráttarafl fyrir ferðamenn með samspili sjávar, fjöru og jarðhita í umhverfi þar sem myrkur, norðurljós og íslensk náttúra njóta sín. Auk þess býður tillagan upp á vaxtartækifæri með frekari tengingu við heilsueflingu, vellíðan og íþrótta- og útivistarfólk. Tillagan er vel unnin og samnýtir á áhugaverðan hátt staðbundnar auðlindir. Tillagan er hvorutveggja í senn frumleg og raunhæf. Gert er ráð fyrir stóraukinni jarðvarmanýtni og minni sóun.“

Dómnefnd hefur ákveðið að veita vinningstillögunni verðlaun að fjárhæð 1.500.000 kr. Nýsköpunarmiðstöð Íslands mun auk þess veita höfundum tillögunnar aðstoð við frekari þróun viðskiptahugmyndarinnar. Orka náttúrunnar mun einnig bjóða höfundum vinningstillögunnar upp á ráðgjöf frá sérfræðingum Veitna sem er systurfyrirtæki Orku náttúrunnar. 

Grunnskólanemar á Hellu fengu sérstök verðlaun

Tillaga frá nemendum 9. bekkjar grunnskólans á Hellu vakti sérstaka athygli dómnefndar. Þeir lögðu til að brennisteinsvetni sem kemur upp með heitri gufu á jarðhitasvæðum verði nýtt til að framleiða brennistein. Um leið myndi magn brennisteinsvetnis í andrúmslofti minnka. 

Þrjár aðrar tillögur fengu sérstök verðlaun: 

Jarðorkueldavélareftir Ólaf Inga Reynisson

Tillagan er áhugavert innlegg í nýtingu jarðvarma þar sem hveraorka er nýtt í margs konar matargerð. Um er að ræða frumlega, raunhæfa og óhefðbundna aðferð við að framleiða og elda matvæli. Tillagan gefur ferðamanninum innsýn í fjölbreytta notkunarmöguleika jarðvarma með sérstöðu íslenskrar náttúru er í aðalhlutverki.

Lág gróðurhús og ræktun nýrra tegundaeftirHafstein Helgason og Eflu verkfræðistofu

Tillagan felur í sér nýbreytni í ræktun afurða þar sem sérhæfð gróðurhús nýrrar gerðar nýta lághita jarðvarma. Um er að ræða sveigjanlega og heildstæða tillögu sem getur dregið úr innflutningi matvæla og býður upp á vinnslu sérhæfðra afurða. Gera má ráð fyrir aukinni fjölbreytni í atvinnulífi og jákvæðum samfélagslegum áhrifum. 

Hampræktun eftirHinrik Jóhannesson

Í umsögn dómnefndar segir: „Tillagan er frumleg og gerir ráð fyrir nýstárlegri nýtingu gróðurhúsa til ræktunar á hampi með fjölbreytta notkunarmöguleika á áframvinnslu s.s. í matvæli, eldsneyti og ýmsan iðnað. Tillagan er heildstæð, býður upp á þverfaglega starfsemi og möguleika á fjölbreyttari atvinnustarfsemi með samfélagslegum ávinningi. 

Á myndinni má sjá Þorstein Inga Sigfússon, forstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar og Svein Aðalsteinsson stj…

Fab Lab smiðja í Fjölbrautaskóla Suðurlands

FabLab smiðja mun til taka til starfa í Fjölbrautaskóla Suðurlands (Fsu) í haust. Nýsköpunarmiðstöð Íslands styrkir smiðjuna næstu þrjú árin með fjárframlagi og faglegu samstarfi um reksturinn.
Hópur snillinga úr grunnskólunum með fullorðna fólkinu.

Snjöll nýsköpun ungra grunnskólanema

Úrslit og lokahóf Nýsköpunarkeppni grunnskólanna 2018 voru haldin í Háskólanum í Reykjavík , laugardaginn 26. maí.