Vel heppnuðu Nýsköpunarmóti lokið
Gríðarlega góð stemming var á Grand Hótel 3. október þar sem rúmlega hundrað manns mættu milli kl. 13-16 og tóku þátt í samtals 230 örfundum, en hver fundur stóð yfir í 15 mínútur, á milli nýsköpunarfyrirtækja og opinberra stofnana. 26 opinberar stofnanir tóku þátt í mótinu, þar á meðal, Landspítalinn, Landhelgisgæslan, Byggðastofnun, Lögreglan o.fl. Sum fyrirtæki nýttu einnig tækifærið og hittu önnur fyrirtæki með hugsanlegt samstarf í huga. Svokallað ,,Match Making" form var notað til að koma á fundunum, þar sem aðilar skrá inn prófíl sinn á vefsvæði og í kjölfarið bóka fundi með áhugaverðum aðilum. Markmiðið með Nýsköpunarmóti var að auka enn frekar nýsköpun í opinberum rekstri og að koma á samtali á milli opinberra stofnana og fyrirtækja.
Nú verður unnið hörðum höndum að eftirfylgni og vonandi verða til árangursríkar viðræður í kjölfarið sem styrkja fyrirtækin og opinberar stofananir enn frekar.
Nýsköpunarmiðstöð, Ríkiskaup og Fjármála- og efnahagsráðuneytið stóðu fyrir mótinu og verður vonandi um árlegan viðburð að ræða.

